Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Blaðsíða 21

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Blaðsíða 21
21 auðvelt, en undir eins jafnrangt, að segja, að læknar væru læknar aðeins til að fá peninga, og tældu menn á meðölum, sem þeir sjálfxr hefðu enga trú á? f>egar nú til þess kemur, hvernig gjöra eigi kjör prestastjettarinnar viðunanleg, án þess að ofþyngja með nýjum sköttum, þá virðist það vera í öllu tilliti sjálf- sagt, að fyrsta ráðið er: að verja þeim tekjum, sem kirkjan þegar hefir, sem bezt og haganlegast. Kem- ur það þá til greina, að breyta verður skipun brauða og sameina þau. Jeg vil ekki fara út í þetta vanda- mikla og umfangsmikla mál, heldur að eins taka fram þá meginreglu, að hver prestur eigi að hafa svo um- fangsmikið embætti, að það gefi honum nóg að starfa, svo hann geti lifað fyrir embætti sitt. Sú mótbára, að embættisfærslan liði við það, að embættisannirnar aukast, meðan það er ekki úr hófi, eða um megn em- bættismanninum, er að minni ætlan alveg röng. Sá prestur, sem sjaldan fer út af heimili sínu, er allra sízt í meira sambandi við söfnuðinn, og vinnur honum eng- an veginn meira gagn en sá, sem opt er á ferð með- al safnaðarins. f>ví hver samvizkusamur prestur hefir það hugfast, að koma hvervetna fram til einhvers góðs í söfnuðinum. J>ví umfangsmeira sem embættið er, þess fleiri tækifæri bjóðast til þess; þvi stærri sem verka- hringurinn er, þess meiri hvatir hefir presturinn til að gjöra það gagn, sem honum er unnt að gjöra. Jeg verð að álíta, að það ætti að vera aðalreglan, að 2 kirkjur væru í hverju prestakalli. Að hinu leytinu er eigi mögulegt að fastsetja, hve víðáttumikil prestaköll eigi að vera, þó svo sje gjört í „J>jóðólfi“, þarsemþað er mjög undir yfirferð og öðru komið, hvað er gjör- legt og hvað ógjörlegt. Munu allir vera á því, að prestakalla- og kirknanefndin hafi farið svo langt, sem fært er, í uppástungum um sameining brauða, og á stöku stað svo langt, að það er því að eins gjörlegt,

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.