Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Page 24

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Page 24
24 hennar þjónum, og einkum skulum vjer þjóðverjar aldrei gleyma þeirri blessun, sem frá prestssetrunum hefir streymt út til alþýðunnar. Embætti þjóna kirkjunnar er eitt af hinum háleitustu og veglegustu; það er þess vegna ljóst, að það er komið undir hinu andlega á- standi á hverjum tíma, hvort fleiri eða færri ungir menn helga sig embætti þessu, og hvort það dregur til sín betur eða miður gáfaða menn. Hin almenna andlega hreifing, sem hænir menn að, eða fælir menn frá, hverju embætti sem er, er runnin af hinum marg- breyttustu rótum, sem hver einstakur maður getur hvorki haft sjálfráð nje ósjálfráð áhrif á. þ>að er þar á móti hlutverk vort, að gjöra skilyrðin fyrir til- veru þessa embættis þannig, að þeir sem þjóna því, þurfi ekki að líða skort. Lífsstaða prestsins er eðli- lega engin yfirlætisstaða, og á eptir eðli sínu að gjöra hóflegar kröfur. Jeg ætla, að það sjeu til ioo dæmi, sem ljóslega sanna, að kirkjan aldrei hefir verið verr stödd, en þegar margir eða flestir þjónar hennar voru sokknir niðuríbílífi, og hugsuðumeiraumað gjöraútvortis kjör sín glæsileg, en að gæta síns andlega embættis. Eigi má vera allt of mikið djúp milli prestsins og al- þýðunnar, sem hann í andlegum efnum á að leiðbeina. En presturinn verður að hinu leytinu að hafa það, sem nauðsynlegt er, til þess að hann geti lifað, að vísu yfirlætislaust, en þó á þann hátt, sem samboðið er menntuðum manni; ogkjörhans verða að vera svo, að hann geti viðhaldið menntun sinni. Ekkert erhrapar- legra, en þegar kjör presta, að eins til að spara pen- inga, eru látin vera svo aum, að í þetta embætti veljist aðeins menn afhinum vesælasta flokki þjóðarinnar, sem getur látið sjer nægja sár-litlar tekjur. Slíka presta getum vjer ekki látið oss nægja; vjer verðum að hafa presta, sem sjeu íærir um að beina þjóðlífinu í andlega stefnu; vjerverðum að hafa menn, sem geta haft áhrif

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.