Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Page 40

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Page 40
40 dómi, sem enn er eig'i auglýstur oss. Vitranirnar líða frá, vjer fáum eigi komið orðum að því, sem ekki verð- ur með orðum skýrt, en verðum einatt að láta oss það nægja, sem vor góði engill hvíslar oss í eyra. Gleym- um því aldrei. (Framhald í næsta hepti). IV. Um rílti og kirkju, saiuhand þeirra og aðskilnað. Eitt af því, sem varpað er fram í blöðum vorum, að því er virðist, án umhugsunar, og án þess' að at- hugað sje, hvað í því sje fólgið, er það, að beri að að'skilja ríki og kirkju. Álíkar raddir heyrast og opt erlendis, einnig opt frá þeim, sem ekki hafa ljósa hug- mynd um, hvað þeir tala. Af hinum fjarstæðustu á- stæðum komast menn til þeirrar niðurstöðu, að það beri að skilja kirkjuna frá rílcinu. þeir sem helzt vilja að trúin hafi engin áhrif á fj'elag manna, óska þessa, og þeir, sem elska kristna trú, halda að þá verði hún fyrst í fullum blóma, þegar kristnin eða kirkjan sje laus við þá óáreiðanlegu og ósönnu limi, sem hið ver- aldlega vald neyðir upp á hana, og óska hins sama. Nokkrir hinir mestu vísindamenn hafa alvarlega íhugað þetta mál, og ritað um það stórar bækur. Einn af hinum vitrustu mönnum þessarar aldar, Guizot, hefir í bók, sem út var gefin í París 1861 (l’Église et la société chrétienne), leitt rök að því, að bæði ríkið og kirkjan mundu niðurlægjast og veilcjast,

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.