Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Blaðsíða 47
47
V.
Kirkjuleg bindindishreifing á Englandi.
Ofnautn áfengra drykkja þykir sífelldleg’a fara í vöxt
á Englandi eigi sízt á meðal kvenna af verkmanna flokki,
og þykir svo mikið kveðaað þessu, að ofdrykkja sje orðin
sannnefndur þjóðlöstur þar í landi. Hið sama lýsir sjer einn-
ig í sorglegum myndum í löndum þeim í öðrum heims-
álfum, sem Englendingar hafa náð yfirráðum yíir; „hinir
rauðu menn“, frumbyggjar Vesturheims, fækka ár frá
ári, og er mest um kennt brennivínsdrykkju, sem þeir
hafa numið af hinum hvítu mönnum, sem tekið hafa
land þeirra undir sig. Hið sama kemur fram á Ind-
landi; áður en Englar náðu þar yfirráðum, þekktulands-
menn því nær eigi þennan banvæna löst, en nú er hann
orðinn þar hryggilega almennur. Á Englandi hafa
bæði hófsemdarfjelög og bindindisfjelög verið stofnuð
fyrir mörgum árum, í því skyni, að reisa skorður við
þessum skaðlega lesti; fjelög þessi hafa að vísu verið
í sambandi við kristindóminn, og haft mestan og bezt-
an stuðning af sönnum játendum hans, en þau hafa
ekki beinlínis komið fram í kristindómsins nafni og
byggt á hans grundvelli, heldur hafa þau verið stofn-
uð á grundvelli almennrar mannúðar og mannástar.
En á hinum síðari árum heíir kennilýðurinn á Englandi
gefið þessu mikilsvarðanda málefni alvarlegan gaum,
og skipað nefndir manna úr sínum flokki til að hug-
leiða það itarlega. 1862 stofnaði enska kirkjan bind-
indisfjelag sitt, og hafði það í lögum, að enginn fjelags-
maður mætti neyta nokkurra áfengra drykkja. Lög
fjelagsins voru endurskoðuð 1871, og öllu fyrirkomulagi
fjelagsins hagað eptir tillögum nefnda þeirra, er skip-
aðar höfðu verið. í fjelaginu eru nú menn af öllum