Lögrétta - 01.01.1934, Síða 13

Lögrétta - 01.01.1934, Síða 13
25 L ÖGRJETTA 26 sterkum trjábolum eða stoðum, sem grafn- ar eru langt í jörð niður, innanvert við veggina. Þetta er gert til þess, að enda þótt öldurnar moli niður veggi hússins í hin- um hræðilegu flóðum, þá sje hins hinsta skjóls að leita uppi á loftinu, þar sem heyið er annars geymt á vetuma. Og það er ekki sjaldgæft að loftin hafa staðið einsömul eftir þegar veggirnir voru hrundir til grunna og húsgögnum öllum skolað burt. Prestur, Biernatzki að nafni, lýsir í smá- sögu sem hann nefnir „die Hollig“ hinstu stund fjölskyldu, sem ferst í flóði. Hann segir. „En stormurinn kemur og sjórinn streymir yfir eyna; sjórinn stígur tuttugu fet yfir venjulegt sjávarmál. Öldumar rísa upp í fjöll og íalla niður í djúpa dali, og hafið gerir nýjar og nýjar árásir gegn hinum eínstæðu eyjabýlum. Moldarhóllinn, nötrandi undan veldi hafsins, verður að láta undan; hann brotnar smám saman niður og skolast jafnóðum burt. Þakstoð- irnar, sem ná jafn lang-t niður í jörðina og upp úr henni, koma í ljós, öldurnar skella á þeim og hrista þær. Óttaslegnir íbúar hússins bjarga uppáhaldskindunum upp á loftið og koma sjálfir á eftir. Það eru líka síðustu forvöð, því að á næsta augnabliki hrynja veggirnir og loftið hvílir aðeins á hinum einstöku stoðum. Með djöfullegri sigurgleði kollvarpa öldurnar öllum hús- munum fjölskyldunnar og öllu því sem laust er, bæði lifandi og dauðu, henda því í eina sogandi hringiðu og bera síðan út í æðisgang hafsins. Grunnurinn undir stoð- unum veikist með hverju augnabliki og fjölskyldan, sem fyrir nokkrum klukku- stundum átti sjer einskis ills von og sem lifði lífsglöð og ánægð við starf sitt, er nú óhjákvæmilegri glötun undirorpin. Hin vota, freyðandi gröf sýður undir henni og á hverju augnabliki má búast við hinum gín- andi kjafti aldanna, seiri alt svelgir í sig'. Nötrandi af hræðslu hlustar eyrað eftir hverju hljóði, hverri vindhviðu og hverju skvampi báranna, óttasleginn hjartsláttur- inn eykst hvert sinn er stoðirnar hristast, og stöðugt hjúfra hinir dauðadæmdu sig fastar hver upp að öðrum. 1 myrkrinu sjást andlitin ekki, þrumugnýr hafsins og stormsins gnæfir yfir hræðsluandvörp fjöl- skyldunnar, en aðeins látbragð eða hreyf- ingar hvers eins gefa angist hans til kynna. Maðurinn þrýstir konunni fastar að sjer og börnin hjúfra sig upp að móður- inni; öll vita þau dauðann við fótskör sína. — Það er ekkert til sem bjargar. Sjórinn spýtist upp á milli gólffjalanna og hann freyðir gegnum hverja rifu og hverja smugu, upp á loftið. Risavaxin alda skellur á þak hússins, brýtur það og sjórinn streymir inn; tunglið veður í skýjum og slær fölri birtu á andlit fjölskyldunnar, sem öll eru afskræmd af hræðslu. Þá heyrist brestur, það er ein stoð loftsins, sem brotnar. Hræðilegt angistarvein. Svo líður löng, óendanlega löng og kvalafull mínúta. Og önnur til. Loftið hallast meir og meir á aðra hliðina — þá ríður af ný alda, hún skellur yfir þakið og steypir því niður í öldurnar. Hin hinsta dauðastuna hverfur í stormgnýinn og alt er orðið að hafi — óendanlegu hafi, sem dansar yíir eyna í viltum sigurdansi með lík að leikfangi“. íbúðarhús, fjós, fjárhús, svínastía og hlaða er alt undir einu og samja þaki og er innangengt á milli. Ibúðin er venjulega ekki stærri en nauðsyn krefur, en í flestum er þó gestastofa. Þessar gestastofur eru að því leyti sjerkennilegar, að í stað þess að pappaleggja þær eða mála, eru þær lagð- ar plötum úr leir og postulínshúðaðar þeim megin, sem í stofuna veit. Á þessar plötur eru málaðar ýmsar myndir, oftast nær frá eyjunum og þá helst eitthvað úr ættarsögu húseigandanna. Það er ekki algengt að finna venjuleg rúm í þessum „Hallighúsum“, heldur sefur fólkið í skápum eða nokkurskonar lokrekkj- um, sem ná inn í veggina. Venjulega sefur öll fjölskyldan í sama skápnum. Taði og mykju, sem safnast yfir vetur- inn, er mokað í sjerstaka safngryfju og geymt þar til vors. Frá 10. til 14. maí er skítnum ekið í börum út á upphækkunina eða hólinn, karlmennirnir aka en kvenfólk- ið tekur þar við mykjunni og ýmist hnoðar liana með höndunum, eða tekur af sjer skóna, fer í tvenna sokka og treður skítinn með fótunum niður í þunna skán. Skánin er

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.