Lögrétta - 01.01.1934, Qupperneq 23

Lögrétta - 01.01.1934, Qupperneq 23
45 LÖGRJETTA 46 ?Iáskólinn Sftír yflexander ^óhannesson Stofnun hásltólans. Eins og- mönnum er kunnugt var háskól- inn stofnaður á aldarafmæli Jóns Sigurðs- sonar, 17. júní 1911. Hann er því einn af yngstu háskólum í heimi, en þó ekki sá yngsti, því að nokkrir háskólar hafa verið stofnaðir á síðustu árum, m. a. í Þýzkalandi og Árósaskóli í Danmörku. Það var Jón Sig- urðsson, sem fyrstur bar fram hugmynd um stofnun háskóla á Islandi. Það var árið 1845, eftir að Alþingi íslendinga var endur- reist, að Jón Siguírðsson bar fram1 uppá- stungu um þjóðskóla, „er veitt geti svo mikla mentun hverri stjett, semj nægir þörf- um þjóðarinnar“. Mál þetta fjell niður, en í stað þess var komið á undirbúningsskólum fyrir embættismenn landsins. Prestaskóli var settur á stofn 1847 og læknaskóli 1876, en innlend læknakensla komst á 1862. Svo bætt. ist við lagaskóli 1908. En altaf lifði háskóla- hugmyndin. Benedikt Sveinsson bar fram 1881 frumvarp um stofnun háskóla og enn 1883 og voru lög um stofnun landsskóla, eins og hann var kallaður, afgreidd frá þinginu, en konungur synjaði staðfestingar. Háskólafrumvarp var enn samþykkt á Al- þingi 1893, en var sem fyr synjað kon- ungsstaðfestingar. Vígsla háskólans. Loks kom að því, að háskólalögum var ekki synjað staðfestingar og fór stofnunar- hátíð háskólans fram 17. júní 1911. Fyrsti rektor var kjörinn Björn M. Ólsen. I setn- ingarræðu sinni komst hann m. a. svo að orði: „Nafn Jóns Sigurðssonar, þessa óskasonar íslands, sem um leið var ágætur vísindamaður, er þannig frá upphafi markað á skjöld háskólans. Ef hann mætti líta upp úr gröf sinni og sjá allt, sem gerist þennan dag til að heiðra minningu hans, hvar sem nokkrir íslendingar eru saman komnir, þá er jeg sannfærður um, að hann mundi ekki síst gleðjast af þeirri athöfn, sem hjer fer framl Vjer vonum, að háskólinn, þegar hann tekur til starfa, muni ekki bregðast þeim vonum, sem þing og þjóð gerir sjer um hann. Framtíð háskólans er undir því komin, að honum takist æ betur og betur að ávinna sjer traust og hylli þjóðarinnar, því að það er hún, sem ber hann uppi af almannafje, og til fulltrúa hennar verður að leita um fjárveitingar til allra nauðsyn- legra umbóta“. Og enn komst Björn M. Ól- sen rektor svo að orði: „Ef vjer allir, sem að stofnuninni stöndum, annars vegar þing og þjóð, hinsvegar kennarar og nám'smenn, tökum saman höndum og reynum af fremsta megni að hlynna að þessurn nýgræðingi, sem' nú er gróðursettur, þá eru vonir um, að hann muni með guðs hjálp, þegar fram líða stundir, verða að stóru trje, er veiti skjól ísl. menningu og sjálfstæðri vísinda- rannsókn hjer á norðurhjara heimsins“. Feldu þig dýpst í dauðans víti; dýpsta víti; heyrðu það. Enginn hlutur á þig minni og ekkert hljóð i mínu inni. Enginn hlutur á þig minni inni í þessum sorgarstað. Farðu úr þessu angurs inni út og burtu; heyrðu það“. „Aldrei framar“, fuglinn kvað.------ svartur ári, myrkravitur. Auga húm af harmi flytur í huga inst, er nemur stað. Fyrir geisla lampans lætur leggjast skugga um vökunætur; eigin skugga allar nætur eiga þar og nema stað. Dauðans skugga daga og nætur draga á hug og nema stað. Eiga þar til andláts stað. Hrafn á styttu sífelt situr;

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.