Lögrétta - 01.01.1934, Side 31

Lögrétta - 01.01.1934, Side 31
61 LÖGRJETTA 62 en 12 smál. og sömuleiðis fyrir frjálsa tryggingu. — Dánarbætur voru ákveðnar 1.500 krónur, er greiðast í einu lagi, til árs- loka 1921, auk sjerstakra bóta til barna und- ir 15 ára aldri, 100 kr. til skilgetinna barna og 200 kr. til óskilgetinna. Frá ársbyrjun 1922 voru dánarbæturnar ákveðnar 2.000 kr., og 200 kr. og 400 kr. til barna. ör- orkubætur, sem hefjast fyrst með þessu tímabili, voru ákveðnar 2.000 kr. til ársloka 1921 fyrir fulla örorku, og hlutfallslega minni eftir því sem örorkan var metin minni. Frá ársbyrjun 1922 voru örorkubæt- urnar ákveðnar 4.000 kr. Meðal árstekjur tryggingarinnar að ið- gjöldum, á þessu tímabili, voru kr. 133.- 020,09, þar af hluti ríkissjóðs kr. 9.380,80 að meðaltali á ári. Alls voru iðgjaldatekj- urnar kr. 927.894,67, þar af greiddi ríkis- sjóður kr. 70.355,93. — Aðrar tekjur voru kr. 61.056.34 alt tímabilið, þ. e. rúmar 8.000 kr. á ári að meðaltali. Útgjöld tryggingarinnar á þessu tímabili voru sem hjer segir: Að meðaltali Alls Kr. au. Kr. au. Dánarbætur 109.005,06 817.540,67 Örorkubætur 5.980.00 44.000.00 Innheimtulaun (3 ár) 6.163,00 18.191,98 Læknisvottorð (4 ár) 36,25 145,00 Annar kostnaður 1.849,12 13.768,42 123.033,43 893.646,07 í lok tímabilsins var sjóður tryggingar- innar orðinn kr. 298.718,71. Hafði hann því vaxið á þessum 7Vá ári um kr. 165.660,87, en það er kr. 22.088,00 á ári að meðaltali. Af iðgjöldunum einum er sjóðsvöxturinn rúmlega 100 þús., eða nál. 13.333 kr. á ári að meðaltali, Hæstar voru dánarbætur árin 1922 kr. 193,300 og 1925 kr. 246.440. Þau ár bæði var reksturshalli á tryggingunni, er nam ár- ið 1922 kr. 36.893,00 og árið 1925 kr. 75.756,00. Er hvorttveggja, að þessi ár bæði falla á síðara hluta tímabilsins, eftir að dánarbætur voru hækkaðar og eins hitt, að dánarbætur eru flestar þessi tvö ár á tíma- bilinu. örorkubætur komu engar til greiðslu fyr en árið 1919 og þá aðeins 100 kr. Hæstar og flestar eru örorkubætur greiddar árið 1923 kr. 20.600,00. Á þessu 71/2 árs tímabili voru greiddar dánarbætur fyrir 397 menn. Svarar það til þess, að farist hafi árlega að meðaltali nær 53 menn, sem skylt var að bæta, á hinum trygða skipaflota. örorkubætur voru greidd- ar samtals 31, er svarar til rúmlega 4 á ári, ef fyrsta V2 árið er meðtalið. Það mun mega telja, að tekjur trygging- ai'innar hafi vel hrokkið fyrir útgjöldum hennar á þessu tímabili. Sje slept tekjum sjóðsins af vöxtum, sem til sanns vegar má færa í þessu tilliti, þar seni rjettmætt hlýt- ur að teljast að iðgjöldin ein beri útgjöldin, a. m. k. útgjöld til slysabóta; og sje tekið tillit til þess að við lok tímabilsins hvíla á sjóðnum allmiklar kvaðir fyrir áfallin slys, þá má þó segja, að sjóðsvöxturinn hafi ekki mátt vera öllu minni. Viðvíkjandi útgjöldum tryggingarinnar skal þess getið, að 1923 voru fyrst færð á reikning innheimtulaun af iðgjöldum og 1922 borgun fyrir læknisvottorð í þágu: slysabótamála. Um reksturskostnaðinn að öðru leyti skal þess getið, að þóknun til stjórnarnefndar tryggingarinnar var frá upphafi greidd beint úr ríkissjóði og hefur ekki verið tekin inn á ársreikningana. Þetta hjeltst óbreytt til 1928. Eftir það hafa laun forstjórans verið greidd af tekjum tryggingarinnar. Slysatrygging ríkisins. — sjómannatryggingin — 1926—1930. Sjómannatryggingin verður nú deild í Slysatryggingu ríkisins, en er þó beint framhald Slysatryggingar sjómanna. Með þessu tímabili hefst dagpeningagreiðsla, 5 kr. á dag, að liðnum fyrstu 4 vikunum eftir að slysið varð, þó ekki lengur en í 6 mán- uði. Iðgjöldin skyldi nú ákveða í reglugerð, í stað þess að þau höfðu verið ákveðin í lögunum sjálfum allt til þessa. Áhættan á skipunum var metin og skipunum skift í flokka eftir því hversu áhættan var metin. Hæst var áhættan metin á vjelskipum og vjelbátum, fyrri hluta tímabilsins 120 aur-

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.