Óðinn - 01.07.1932, Qupperneq 10

Óðinn - 01.07.1932, Qupperneq 10
58 ÓÐ I N N Þrír gamlir prestar. Um eilt skeið var það siður smærri postul- anna meðal skáldanna að hafa prestana að skotspæni. Meðan þeir höfðu undir höndum kirkjujarðirnar og sjálfir innheimtu á tekjum sínum, var þeim borin á brýn aurasýki og á- gengni og jafnvel fjárdráttur, en þegar breyting varð á þessu, svo þessar ásakanir hentuðu ekki lengur, var þeim borin á brýn hræsni og skyn- helgi, en sem betur fór var, og jeg vil segja er, prestastjett vor svo göfug og vel menluð, að þelta hrein ekki á henni. Hún gat alveg hafið sig yfir allar slíkar árásir án þess að svara þeim einu orði. Hitt virtust þessir menn síður koma auga á, að prestarnir voru mentunarfrömuðir og sið- ferðismeðvitundar- og siðmenningar-boðberar þjóðarinnar. 1 þessum málum voru það þeir, sem mynduðu almenningsálitið og varðveittu það með rökum sínum og siðferðislegum þroska. Get jeg til skýringar tilfært nokkur dæmi er sanna þetta, og hef jeg með vilja valið þau öll úr minni eigin reynslu, þó mörg önnur megi til greina, og flestir muni geta tilfært dæmi úr sinni reynslu, er þeir athuga málið. Veturinn 1880—81 var jeg að læra undir skóla á Breiðabólstað á Skógarströnd hjá Guðm. próf. Einarssyni. Þetta var frostaveturinn, sem flestir munu hafa heyrt nefndan. Jeg ætla ekki að lýsa harðviðrunum eða fannferginu, en að eins geta þess, að þegar leið að þorralokum sáu fleiri af efnaminni bændunum að heybirgðir sínar mundu ekki endast, og fóru að leita fyrir sjer um hjálp hjá hinum, sem betur máttu, en eins og á stóð var flestum óljúft að veita hjálp, og voru þó margir, og þar á meðal prófasturinn, vel stæðir með hey. — Þegar leið fram á góuna og ekki rjenuðu harðindin, sáu menn að svo búið mátti ekki standa. Hreppsfundur var hald- inn á Breiðabólstað að tilhlutun hreppsnefndar- innar, til að ræða um þetta vandamál, hlýddi jeg með áhuga á ræður manna, og gæti jafnvel skýrt nánar frá þeim, en læt að eins nægja að geta þess, að einn af hreppsnefndarmönnum bjelt mjög eindregið fram þeirri skoðun, að heyþrotsmennirnir yrðu að skera af heyjum sínum, því hitt væri ótækt, að fara að taka upp hey hjá mönnum, sem með dugnaði hefðu sjeð betur fyrir sjer, því trúlegt væri að jarðbann yrði langt fram á vorið, þar sem margra feta gaddur lægi jafnt yfir alla jörð, kvaðst fús til að bæta að hausti, að sinu leyti, tjón þeirra manna, sem harðast yrðu úti og helst þyrftu hjálpar við, ef sjer hepnaðist að koma sinum stofni sæmilega undan. Fanst mjer þetta drengi- lega mælt, enda flutti hann skoðun sína með krafti og fjöri. Flestir aðrir stóðu ráðviitir og voru mjög hikandi og skiftust í flokka með og mót. En vel sá jeg, að þeim, sem hjálparinnar þurftu, leið illa og að þeir voru áhyggjufullir um sinn hag.—Prófastur var viðstaddur en lagði ekkerl til málanna, enda var hann vfst ekki hreppsnefnd- armaður á því ári. Umræðurnar duttu niður, málið var útrætt, en engin ákvörðun tekiu, og allir þögðu og voru hljóðir. Mjer skildist, að þeir væntu þess, að prófastur tæki til máls og segði sína meiningu. Prófastur gekk um gólf meðan á umræðunum stóð; hann hafði þann sið, er hann var i sinum hugleiðingum, að hann hreyfði hendurnar og lagði saraan flata lófana, þannig, að aðeins fingurgómarnir mættust, og mátti stundum af þessum handahreyfingum marka hvað honum var innan brjósts. Hann gekk áfram um gólf, lagði lófana saman og virtist mjer helst eins og hann hefði ekki verulega fylgst með umræðunum, eða þær haft áhrif á hann. F*ögnin fór að verða nokkuð löng og for- vitni mín óx á þvi, hvernig þelta mundi lykta. Loks sló prófastur höndunum langt til og lagði þær saman aftur og tók til máls, og því sem hann sagði gleymi jeg aldrei: »Verið þið rólegir, piltar mínir, verið þið rólegir! Hjer kemur guð og hjálpar, hjer kemur guð og hjálparcc. Síðan vjek hann sjer að þeim, sem mesta þurfti hjálp- ina og sagði við hann: »Þú getur komið i fyrra- málið með pokana þína, þjer skal verða hjálpað«. Jeg var ekki vel ánægður á því augnabliki, mjer fanst detta úr þessu botninn, engin sam- þykt, ekkert bókað í fundarbókina. Allir stóðu upp og fóru að tala saman í einni bendu og alt lenti í hávaða, og jeg vissi svo ekki meir. Hitt hefði mjer fundist sögulegra: Hreppsnefndin kafandi í ófærðinni, að sjá um niðurskurðinn, og svo aftur að hausti, að úthluta kúgildunum til þeirra, sem skorið hafði verið hjá, stórum, feitum og vel öldum rollum og lömbum. — Nú finst mjer jeg skilja prestaöldunginn vel og hans sálarfarslegu þekkingu.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.