Óðinn - 01.07.1932, Qupperneq 12

Óðinn - 01.07.1932, Qupperneq 12
60 ó Ð I N N tæklingunum og veita þeim mesta hjálpina, sem mestan höfðu skaðann liðið, og hatði þar orð- ið svo heitt blóðið í einum Vatnsdælingnum. að hann gerði sig líklegan til að berja föður minn, ef honum hefði ekki verið varnað þess af öðrum. Jeg man það vel, að jeg stóð frammi í bæjar- dyrunum þegar stofuhurðinni, þar sem fundur- inn stóð, var brundið upp að innan og prestur þaut fram úr dyrunum, skelti hurðinni á eftir sjer, æddi inn bæjargöngin og inn í baðstofu og skelti öllum hurðum, og jeg heyrði ekki betur en hann styndi. Hann æddi fram ogaftur um baðstofuna og skelti hurðum á milli her- bergjanna alveg eyrðarlaus, en þá kom frúin að framan og hurfu þau bæði inn í hjónaherberg- ið. Jeg held að hann hafi ekki komið aftur fram og enginn kvatt hann af mótflokksmönnum hans, sem enduðu nú fundinn í næði og út- hlutuðu Undirfellsbúinu 8 hestburðum af korn- mat, ef jeg man rjett. Heyrði jeg að sumum þótti þetta skrítið, því prestur hafði Iýst því yfir, að hann tæki ekkert af gjafakorninu. Snemma næsta morgun sendi prestur mann til oddvitans og Ijet hann vita, að hann ætlaði sjer sjálfur að ráðstafa því sem sjer hefði verið ætlað. Ljetsíð- an söðla hest sinn og reið fram um dal og út- hlutaði korninu til þeirra, sem fátækastir vóru. Einum sekk af haframjöli kom hann ekki út, því þá kunni enginn að jeta bafragraut og þeim, sem hann smökkuðu, þótti það versti matur. — Lárus Blöndal sýslumaður bjó þá á Iíornsá og hef jeg fyrir satt, að hann hafi gefið fátækum sinn hlut, og eftir það fór hróður þeirra lækkandi, sem mest börðust fyrir að mata krókinn á þessu gjafafje. Þegar jeg man fyrst eftir, sóttu Dalamenn verslun sína til Borðeyrar, en einstöku menn fóru þó til Stykkishólms og sögðu verslun þar betri. Eitt sumar bar það við að kaupmenn á Borðeyri settu ullarverðið 5 aurum lægra á hvert pund en í Stykkishólmi. Þetta blöskraði bændum, og er þeir frjettu að á Brákarpolli mætti jafnvel fá hærra verð, fanst þeim þetta óþolandi, en þó þeir fyndu að þessu við Borð- eyrarmenn og hótuðu þeim öllu illu, þá stoðaði það ekkert, heldur sátu þeir fastir við sinn keip. Bændur höfðu dregið við sig að afhenda ull- ina í von um að verðlagið breyttist til batnaðar, en nú fór að líða að kauptíðarlokum og hafði verið gert aðvart um, að bændur yrðu að hraða sjer því kaupfarið ætti að sigla innan tíðar. Þá var haldinn hreppsfundur í Hjarðarholti fyrir Laxárdalshrepp til að ráðgast um hvað nú skyldi taka til bragðs. Það gat komið til mála að flytja ullina út í Stykkishólm og fá milliskrift. En nú var háslátturinn og dýr hver dagurinn, vegur- inn illur og langur, og óvíst hvort ullin yrði tekin. Það var einhversstaðar frá komin sú alda, að rjettast væri að velgja Borðeyrarmönn- um einu sinni undir uggum og láta þá alls ekki fá ullina. Til þess að þelta tækist, þurfti samtök, ekki að eins Laxdæla, heldur allra sveitanna, ogtil þess að koma þeim á, var fundurinn einmitt haldinn. Um þetta var rætt fram og aftur og flestum var ósárt um kaupmennina. Sumir hjeldu að kaupmenn mundu hækka verðið, ef til þess drægi að þeir hefðu ekki nægan farm í skipið og yrði að láta það liggja fram yfir vanalegan tíma, þvi þá fjellu á dagpeningar, og það mundi kaup- mönnum þykja lítt tilvinnandi og láta þá und- an síga. Þelta var farið að festa sig svo í hugi manna að þeim fast rjettast að reyna þessa Ieið, ef allír gætu orðið sammála um þelta. Þeir, sem viðstaddir voru, áttu því að segja til, hvort þeir yrðu með i samlökunum eða ekki. En er kom að föður mínum, kvað hann nei við. Hann var þá spurður að af hverju það væri, og sagði hann þá eitthvað á þessa leið: Það var sú tíð, að bændur, þ. e. goðarnir, rjeðu verðlagi á varn- ingi kaupmanna, og á einokunartimanum hafði stjórnin kauptaxta, er fara skyldi eftir i við- skiftum, en nú er þetta löngu horfið. Nú er svo komið að kaupmenn einir hafa ráðið og ráða verðlagi bæði á innlendum og útlendum vörum án nokkurs íhlutunarrjettar af lands- manna hálfu og mætli helst líla á þetta sem óskráðan samning. Nú hefðu menn tekið vörur sínar hjá kaupmönnum til láns og hjá sumum vildi við brenna að lánin stæðu jafnvel árlangt eða meir; þessi lán hefðu kaupmenn veitt i fullu trausti þess, að þeir að vanda fengju vör- ur bænda eftir því sem þær frekast til fjellu. 1 sínum augum væri það svikum næst að halda fyrir kaupmönnum vörunum, sem þeir ættu að minnsta kosti siðferðilega rjett til að fá. En et menn vildu fá i sínar hendur umráð yfir versl- uninni, þá vissi hann það eitt ráðið að stofna kaupfjelag og á þann hátt keppa við kaupmenn- ina og til þess fjelagsskapar væri hann fús, ef til kæmi. Samtök urðu engin og ulíin afhentað vanda. Jón Jónsson læknir.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.