Óðinn - 01.07.1932, Síða 16

Óðinn - 01.07.1932, Síða 16
64 ÓÐINN Jóhannes Sigurjónsson og Þórdís Þorsteinsdóttir frá Laxamýri. Jóhannes er sonur Sigurjóns heitins stórbónda á Laxamýri, og eru myndir og ævisögur foreldra hans i »óðni« 1926, en mynd Jóhannesar afa hans, sem líka bjó á Laxamýri og gerði þar fyrstur garðinn frægan, er í »óðni« 1930. Jó- hannes Sigurjóns- son átti ný- lega sjötugsaf- mæli. Hann ólst upp hjá foreldr- um sínum á Laxa- mýri, fór í Lat- ínuskólann og varð stúdent 1889, en hætti þá námi og fór til Vestur- heims. Dvaldi hann mörg ár vestan hafs, en kom svo heim, bjó um eitt skeið á föðurleifð sinni, ásamt Agli bróð- ur sínum, og kvæntist þar, en síðan bjó hann um hríð á annari jörð þar í grendinni, þangað til hann fluttist til Reykjavikur fyrir nokkrum árum. Hann vill sem minst láta um sig skrifa, og er þó maður vel að sjer og fróður um margt. En Guðmundur skáld Friðjónsson hefur sent »Óðni« eftirfarandi grein um frú Þórdisi, konu Jóhannesar: Hún var fædd að Hámundarstöðum við Eyja- tjörð 24. sept. 1875, en Ijetst á Laxamýri 10. des. 1921, gift Jóhannesi syni Sigurjóns á Laxamýri. Faðir Þórdísar var Þorsteinn hákarlaskips- formaður á Stóru-Hámundarstöðum, Þorvalds- sonar á Krossum, Gunnlaugssonar. Kona Þor- valds og móðir Þorsteins var Snjólaug Baldvins- dóttir, prests á Upsum, Þorsteinssonar prests í Stærri-Árskógi, Hallgrimssonar prófasts á Grenj- aðarstað, Eldjárnssonar. Var sjera Hallgrímur kominn af Guðríði Pjetursdóttur, systur Hall- gríms sálmaskálds. Bróðir sjera Baldvins á Ups- um var sjera Hallgrímur faðir Jónasar skálds. Jóhannes Sigurjónsson. Kona Þorsteins á Hámundarstöðum, móðir Þór- dísar, var Margrjet Stefánsdóttir, Baldvinssonar frá Upsum og vóru þau hjón systkinabörn. Bróðir Margrjetar var Krístinn Stefánsson í Ystabæ í Hrísey, faðir Stefáns prófasts, sem nú er á Völlum í Svarfaðardal. Þessar ættir mætti rekja á ýmsar lundir til stórmennis. Svo sem mynd Þórdísar ber vott um, var hún vel á sig komin í andliti og í framgöngu slíkt hið sama. Mjer er minnisstætt það, sem Sig- urður ráðherra i Felli mælti við mig eitt sinn: »Mjer finst vera eilthvað Berg- þórulegt við hana Pórdísi á Laxa- mýri«. Hann átti við konu Njáls. Pórdís var »ung gefin« bónda sín- um, svo sem Bergþóra kvað að orði um sjálfa sig andspænis Flosa, kveldið það sem kveykt var í bæn- um. Og eitt gekk yfir Þórdísi og Jó- hannes, þar til Pórdís varð bráð- kvödd. Börn þeirra hjóna á lífi eru þessi: Sotfia, gift Jochum Eggertssyni í Grímsey, Snjólaug Guðrún, gift Eiríki Jónssyni frá Klifshaga, nú í Reykjavík, Jóna Kristjana, gift Árna Bene- diktssyni frá Hallgeirsstöðum á Langanesi, full- trúa við Áfengisverslunina í Rvík, Margrjet Stefa- nía, hjúkrunarkona á Landsspítalanum, Liney og Sigurjóna, allar þrjár ógiftar. Jóhannes undi eigi búskap til lengdar eftir lát konu sinnar og dvelur hann nú í Reykjavík, einkennilegur maður og bókelskur. Fjögur alþýðuskáld í Þingeyjarsýslu kvöddu Þórdísi með kveðlingum. Hjer kemur eitt sýnis- horn þeirrar Ijóðagerðar: Pórdis Porsteinsdóllir. Á snæbreiðum Iaufdreifar liggja og langnætti skyggir á fjörð, því senn eru sólstöður komnar, um sálir halda þær vörð. En það snertir Pórdísi ekki, er þáði heimboð í gær að dávaldi’, er dagsetri stjórnar og draumsælu veitta fær.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.