Óðinn - 01.07.1932, Síða 21
ÓÐINN
69
Hús Ólafs Johnsens konsúls »Esjuherg« við Pingholls•
slrœti, bygt af A. Obenhaupt slórkaupm.
Hús A. J. Jóhnsons bankagfaldkera, nr. 16 við Sól-
vallagötu.
Hús Bjarna Jónssonar bíóstjóra »GaltafeU« við Laufás-
veg, bygt af Pjelri J. Thorsteinsson stórkaupm.
Hús Bergpórs l'eitssonar skipstjóra )->Alfheimar«. við Sól-
vallagötu, bygt af Jónatan Porsteinssyni slórkaupm.
Ýmislegt eftir Benedikt Gröndal. Svo heitir bók,
sem kemur út í haust, og er innihald hennar: 1. Um
skáldskap, fyrirlestur, sem Gröndal flutti hjer í Reykjavik
haustið 1888 og er svar við fyrirlestri, sem Hannes Haf-
stein hafði þá nýlega flutt hjer, og deila þeir um »róman-
tik« og »realisme« í skáldskap, og um viðhorf íslenskra
skálda á þeira tímum til þessara stefna. t inngangi að
fyrirlestrinum hefur Vilhjálmur P. Gíslason skólastjóri
gert grein fyrir afstöðu H. Hafsteins til deilumálsins og
skýrt frá, hvernig fyrirlestrunum báðum var tekið af
Reykjavíkur-blöðunum og almenningi, þegar þeir voru
fluttir. Er mikill fróðleikur í fyrirlestri Gröndals og má
án efa telja hann eitt af merkari ritum hans. »Hann er
eftirtektarverð og skemtileg bókmentasöguleg lieimild«
segir V. P. G., »hvaða álit sem menn kunna að hafa á
einstökum skoðunum höfundarins«. Fyrirlesturinn er
sjerprentaður úr tímaritinu »Lögrjetta« og hefur ekki
birtst á prenti fyr en þar. — 2. er stuttur gamanleikur,
Geitlandsjökull, með nokkrum kvæðum. — 3. er Ferða-
saga, skemtileg og fyndin frásögn um göngu Gröndals
um Reykjavikurbæ nálægt 1890 og heimsóknir hans á
ýmsum stöðum í bænum.