Óðinn - 01.07.1932, Page 36

Óðinn - 01.07.1932, Page 36
84 ÓÐINN 50 ára prentaraafmæli átti Jón Einar Jónsson, prentari í Gutenberg, 1. nóv. í ár. Hann er fæddur í Vesturkoti í Leiru 5. október 1868, en flultist til Reykjavíkur með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni og Ragnhildi Ein- arsdóttur, 1878, og voru þau fyrst á Gríms- stöðum við Skerjafjörð, en flultust inn í bæinn 1880. Jón byrjaði prentnám hjá Sigmundi Guð- mundssyni 1. nóv. 1882, sem þá hafði ný- lega stofnað prentsmiðju.og var hún til húsa i Merki- steini við Vest- urgötu, en flutt- ist síðan í hús Einars Jóns- sonar í Skóla stræti og brann þar. Fór Jón þá til framhaldsnáms í ísafoldarprentsm. 1896 fór Jón austur á Seyðisfjörð, til Skafta ritstjóra Jósefssonar, þar var hann tvö ár, eða fram í maí 1898, en kom þá aftur til Reykjavíkur og rjeðist nokkru sið- ar til Jóns ritstjóra Ólafssonar, sem þá selti á fót nýja prentsmiðju i gamla pósthúsinu við Pósthússtræti. Varð Jón verkstjóri þar og vann í þessari prentsmiðju einnig eftir að þeir Davíð Östlund og sjera Lárus Halldórsson urðu eigendur hennar. En eftir 5—6 ára veru þar fór Jón aftur f ísafoldarprentsmiðju og vann þar þangað til prentsmiðjan Gutenberg tók til starfa, og var hann einn af stofnendum hennar. Jón hefur starfað í ýmsum fjelögum prentara og stundum verið í stjórn Prentarafjelagsins. Hann var í stjórn Söngfjelags, sem prentarar stofnuðu eitt sinn og hjeldu uppi um tíma, og formaður Leikfjelags, sem þeir einnig stofnuðu og hjelt uppi sjónleikjum i 2—3 vetur. Að bindindismálum hefur hann unnið mikið og lengi. Hann kvæntist 14. nóv. 1891 Sigurveigu Guðmunds- dóltur og eiga þau 6 börn, sem nú eru öll korain á fullorðins ár og hin myndarlegustu. að afsaka, að hann mundi í hugsunarleysi hafa látið svo mikið fe í, að hann var hræddur um að hann hefði sýnt mjer banatilræði með því. — Jeg ljet sem ekkert væri og sagði, að teið hefði verið ágætt. Við Færeyjar höfðum við langa dvöl, því hvass- viðri og stormar töfðu fyrir allri uppskipun. Kom það oft fyrir, að á kvöldin var siglt út á rúmsjó og farið svo inn aftur næsta morgun, af því skipstjórinn var hræddur við að liggja inni á höfnum. í liðuga viku var verið að skrölta við Færeyjar. — Jeg hjelt sam- komur í Trangisvogi, Þórshöfn og Klaksvík. Til Klaks- víkur komum við snemma á sunnudagsmorgni. Jeg fór í land kl. 10 að grenslast eftir messu. Jeg varð glaður, er jeg heyrði kirkjuklukkum hringt. Guðsþjón- usta átti að byrja kl. 11 árdegis. Þegar jeg kom að kirkjunni, fjekk jeg að vita að presturinn væri að messa á annexíu, en siður væri að lesa húslestur í kirkjunni, þegar prestur væri ekki heima. Það vóru sungnir tveir sálmar. Djákni las upp frá kórdyrum pistil og guðspjall dagsins, og síðan hús- lestur úr einhverri postillu, svo voru aftur sungnir tveir sálmar. Mjer þótti einkennilegt að síðasti sálm- urinn var kvöldsálmur: „Jeg er Iræt og gaar til Ro, Lukker mine 0jne to" o. s. frv. Klukkan var þá tólf á hádegi. Mjer datt í hug, ef söfnuðurinn færi eftir þessu bókstaflega og færi að sofa þar í kirkjunni, og jeg átti bágt með að verjast brosi. — Eftir guðsþjónustuna gekk jeg til djáknans og sagði honum hver jeg væri, og spurði hvort jeg gæti fengið kirkjuna um kvöldið til þess að halda samkomu. Hann kvaðst ekki þora það, af því að presturinn væri ekki heima. En hann sagði, að til væri samkomuhús í bænum, sem jeg sjálfsagt gæti fengið. — Jeg fjekk húsið kl. 6, og varð að vera búinn kl. 7, því þá átti að byrja þar færeyskur dans- leikur. Svo hjelt jeg samkomuna. Efíir hana kom til mín maður brjáluðu konunnar, sem verið hafði mjer sam- skipa til Hafnar, og áður er getið. Bróðir hans hafði skrifað honum um mig. Þrír myndarlegir synir voru með honum; þeir voru allir mjög hlýjir við mig. Bóndínn sagðist hafa fengið góðar fregnir af henni og mundi hún koma heim með vorinu. Þegar jeg gekk frá sam- komuhúsinu, heyrði jeg glumrugang mikinn inni fyrir, það var verið að ryðja bekkjum burt fyrir dansinn. Mjer datt í hug að lítið gagn mundi verða að þeirri samkomu. En 17 árum seinna fjekk jeg brjef frá manni í Klaksvík, sem sagði mjer, að á þeirri sam- komu hefði hann vaknað upp til meðvitundar um frelsið í Kristi og það hefði leitt til þess að hann varð trúaður kristinn maður. Frá Færeyjum var svo haldið síðasta áfangann til Reykjavíkur; það tók eitthvað um 5 daga. — Það var kl. 2 um nótt að jeg vaknaði lil þess að snúa

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.