Óðinn - 01.07.1932, Page 45

Óðinn - 01.07.1932, Page 45
ÓÐI N N 93 rúminu lægi, hefði þá, eins og oftar, talað í sig kjark og manndóm. Var það og æfinlega sagt, að Guðrún spilti Einari og æsti hann upp til stórræða. — Guðrún, dóttir Einars, veiktist einnig og varð upp úr þeirri veiki ráðvilt, og lifir enn þá, aumingi. — I’órunn, dóttir hans, var einnig undarleg og heilsutæp. Hún dó úr krabbameini, uppkomin. — En þau önnur af börnum Einars, sem upp komust, eru Þorsteinn, búfræðingur í Holti, og Halldóra, húsfreyja í Kaldrananesi, mesta gæðakona. Öllu sínu mótlæti tók Einar með stillingu og sýndist allajafnan glaður og reifur. Hann vjek hvergi af hólmi og sýndi karlmanns kjark við hvað eina, sem hann vann. Á sama tíma háði hann harða sókn á andstæðinga sina, til þess að halda uppi rjetti ábýlisins, og vakti yfir veikri konu sinni og börnum. Varð að sjá á bak einu heimilisgleði sinni og líða andúð og álas vegna athafna sinna í þrætumálinu. En þrátt fyrir alt þetta sást Einar aldrei öðruvísi en glað- ur, meinstríðinn, fyndinn og albúinn til varn ar, hve mikið ofurefli sem sýndist við að eiga. Svo skilvis var Einar í öllum viðskiftum, að heldur kaus hann að greiða fram yfir rjettmæta skuld, en láta á vanta. Hann hataðí skuldir og skilleysi. Hann kvartaði aldrei undan sveitar- útsvari eða öðrum gjöldum og greiddi i rjettan gjalddaga. Væri honum greiði ger, margborgaði hann, svo var og, fyndi hann sjer órjett gert, að einnig þá borgaði hann ríflega og ekki sem notalegast. Var og svo komið, að fáir leituðu á hann, því allir vissu, að hvorki var notalegt að lenda í höndum hans eða verða fyrir orðsend- ingum hans — því hann bar svo jafnan vopn að manni að við kæmi — og var glöggur á höggstaðinn. Við presta var honum illa, og hafði staðið mest í höggi við þá. Að verja rjett sinn og hefna mótgerða, þótti honum óumræðilega mikilsvert. Um mann, sem honum þótti lítt úrræðagóður, sagði Einar eitthvert sinn: »Hann hefði átt að verða prestur, garmurinn, hann er svo hjartagóður og lítilsigldur«. — Ýmsar hnilti- legar sagnir eru til eftir Einari og heppileg svör, sem sýna glöggskygni hans og napurt háð, þegar því var að skifta. Dulur var hann á innra mann sinn og síglaður var hann, hvernig sem hagur- inn stóð. Og við öl ofsakátur. Hafði þá gaman af að koma öllum í ærsl og atgang, svo jafnan mátti sjá þröng mikla þar sem Einars var von. Alla tíð var hann heilsugóður sjálfur og unni sjer engrar hvíldar. Sífelt stóð hann á verði og átti í höggi við erfiðleika — og þegar honum sárnaði mest, glotti hann um tönn. Það mátti einnig sjá hann gráta af gleði, en aldrei af sorg. Hann var alla tíð mjög frjálslyndur í landsmála- skoðunum sínum, og fylgdi öllu því er gerðist í þjóðmálum með heitum áhuga. Hann var full- kominn vinur Þjóðverja, en gaf sig minna að Englendingum. Meðan á síðasta Norðurálfu- ófriðnum stóð, var hann síárvakur að fá frjettir og fylgdist allra manna best með því, er blöðin sögðu um stríðið. Áhuginn logaði í honum og löngun til að komast i stríðið með Þjóðverjum, þótt hann væri þá á áttræðisaldri. Þegar hann frjetti að Island væri orðið sjálfstætt riki, 1918, grjet hann af gleði, og sagðist nú fá að deyja ánægður. Einar var tryggur í lund, og að upplagi ókvikull kjarkmaður, gætinn og ráðsettur bú- maður og besti fjelagsmaður. Átti næmar og góðar tilfinningar, sem hann reyndi að fela vandlega undir grímu harðneskju. Hann var karlmannlegur á velli og forn í hugsunarhætti. E. G. * Gamlar þingvísur. 1894 sátu tveir Hafnar-lslending- ar á þingi, Bogi Th. Melsteð sagnfræðingur og doktor Jón Porkelsson. Lítill vinskapur var milli þeirra á þeim árum og áttu þeir oft I deilum. Jóni þótti Sigfús Vest- mannaeyjaþingmaður um of fylgispakur Boga í atkvæða- greiðslum, og einu sinni, er Bogi var ekki kominn i sæti sitt þegar atkvæði voru greidd, orti Jón þessa visu, en á orðinu »kjörgripui« stendur þar svo, að Bogi hafði í ræðu kallað Geysi kjörgrip og þótti Jóni óheppi- lega að orði komist: »Fát kom á hann Fúsa minn, feiminn varð hann, drengurinn, þvi kjörgripurinn kom ekki’ inn, kómiskur í sniði. Öll rugluðust atkvæðin; hann augum gaut um þingsalinn og vissi hvorki út nje inn frá almennu sjónarmiði« Bogi var ekki hagmæltur. En Jón frá Múla svaraði nafna sinum með þessari vísu: »Raupmannahafnar kurteisin komin er á þingið inn; dugar allvel doktorinn drótt að svifta friði. Langar hann i landssjóðinn, lófann til að fylla sinn, en ilia sæmir ósvífnin frá almennu sjónarmiði.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.