Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Blaðsíða 2

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Blaðsíða 2
2 hafa valdið þvi, að Resensbók les „Möðruvellingagoð- orð“, sem bendir oss til Eyjafjarðar; þetta hið sama mun og hafa verið skilningur Meidells1, sem hefir ætl- að, að goðorðið drægi nafn sitt af Völlum í Svarfað- ardal. Aptur hafa aðrir skilið staðinn svo, að Oxna- dalsheiði væri takmörkin að norðan, en „Ávellinga- goðorð“ að vestan, og er það eflaust réttara. Ef Á- vellingagoðorð — eign Snorra Sturlusonar — ætti að vera takmörk ríkis Kolbeins að' norð'an, þá yrði nauð- synlegt að skilja staðinn svo, sem Kolbeinn hefði átt allan Norðlendingafjórðung fyrirvestan Öxnadalsheiði, þar sem engin takmörk væri þá tiltekin að vestan. En nú vitum vér eigi til, að Snorri hafi nokkurn tíma átt nokkurt goðorð í Eyjafirði, enda er hans eigi get- ið á þessum hinum sama stað rétt á eptir, þar sem taldir eru goðorðaeigendur fyrir norðan Öxnadalsheiði, og hins vegar vitum vér, að Kolbeinn ekki gat átt allan Norðlendingafjórðung frá Öxnadalsheiði alt vest- ur að Hrútafjarðará, því Snorri átti einmitt mannafor- ræði vestan til í Húnavatnsþingi, og þar búa og Mel- menn, sem áttu þátt í goðorðinu með honum. í Sturl- ungu (VII, 38. kap.) er sagt frá skærum Miðfirðinga og Víðdæla á öndverðri 13. öld. Er þar sagt, að Snorri Sturluson hafi átt „flesta þingmenn í hvárra- tveggju héraði, ok þótti mönnum til hans koma, at sætta þá“. Snorri fer því norður og stefnir öllum ó- róaseggjunum á Mel í Miðfjörð til þorgils Kálfssonar, er þar bjó. Að Snorri stefnir þeim á Mel, hefir sjálf- sagt komið af því, að porgils Kálfsson átti goðorðið með honum. Eigi varð þó sættum komið á með mönn- um í það skipti, heldur sló í bardaga og varð Snorri hjá að sitja, því að hann var liðfár; vóru síðan dylgjur 1) í sýnishorni af: »StedviserpaaIslandskortet«, útgefnu 1873.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.