Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Blaðsíða 50
eptir í retortunum, þegar hin önnur efni eru burtu
farin, og sem Asphalt er búið til úr; asphalt er brúk-
að mikið sem cement, og sem gljákvoða; það er haft
til að gjöra úr gólf og stræti; það er haft til þess að
varðveita hús fyrir sagga, þannig, að því er roðið
yfir grunnmúrinn eður yfir allan grundvölhnn; og þeg-
ar asphalt er sett saman við möl, sand og leir, búa
menn til úr því kletta, sem eru mjög sterkir og þéttir,
og sem vatnið vinnur ekki á; eru þannig bygðar
bryggjur, sjávargarðar og skipakvíar.
Áður en vér hættum að lýsa hinum ýmsu kola-
tegundum, viljum vér geta um eina efnategund, sem
er mjög skyld kolunum, og hefir sama uppruna og
efnasamsetningu, sem kol, þótt hún ekki með réttu
lagi geti kallazt kol. J>essi efni eru steingjörðir har-
pixar (Fossil Resins) og jarðbik (Bitumen), þar með
talinn rafur, jarðbik (Bitumen) og steinolía (Petroleum).
]pau finnast á yfirborði jarðarinnar eða i þrímyndunar-
lögunum (Tertiary strata), nema hin ameríkanska stein-
olía, sem finnst meðai hinna elztu kletta, jafnvel fyrir
neðan kolalögin; og sýnast þau hafa myndazt af á-
hrifum hita á kol eður jurtaefni, er hafa verið grafin
í jörðu niður.
Rafur kemur opt fyrir í lignit-lögum, en helzt
finnst hann á ströndum Austursjávarins milli Königs-
berg og Memel; hefir sjórinn þar kastað honum á land
upp. Hann er ljósgulur og meira eða minna gagnsær,
og rafurmagnast ef hann er núinn. Hann er brúkað-
ur til ýmislegra smíðisgripa, og einnig að nokkru
leyti til gljákvoðu.
Jarðtnk, asphalt eða bitumen finnst víða um heim-
inn, en mest af því, samankomið á einn stað, finnst
við Dauðahafið og við Tjörustöðuvatnið (The Pitch
Lake) i Trinidad. Einnig finnst mikið af því í Frakk-
landi og pýzkalandi. pað er mórautt eða svart á lit,