Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 8

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 8
8 annars er rétt í handritunum og dregið af nokkru ör- nefni. Menn hafa og leitað fyrir sér í vestanverðu Húnavatnsþingi. Björn frá Skarðsá gat þess til, að nafnið væri dregið af Völlum á Vatnsnesi; Guðbrand- ur Vigfússon dregur nafnið af Ásgeirsá í Víðidal, því að í Bandamannasögu er nefndur Styrmir goði að Ás- geirsá, og Kaalund treystir sér eigi til að finna neitt örnefni um þessar slóðir, sem goðorðið gæti verið kent við1. f>að er nú hægt að sanna, að nafnið hvorki getur verið dregið af Völlum á Vatnsnesi né af Ásgeirsá. |>ví ef vér setjum, að „Ávellingagoðorð“ sé hið rétta nafn goðorðsins, þá hlýtur það að vera leitt af nafnorðinu á (lat. amnis) og síðari hlutinn af völlum, en fyrri hlutinn getur eigi verið kominn af forsetningunni á (lat. in), því að það væri gagnstætt lögum íslenzkrar tungu að tákna svo þá menn, sem búa „á Völlum“, heldur mundu þeir vera nefndir Vellingar eða öllu heldur Vallamenn (Vallnamenn) forsetningar- laust. Vellir á Vatnsnesi hafa aldrei, svo menn viti, verið nefndir „Ávellir" hvortsem átter við Ytri eða SyðriVöllu, enda er þar engin á nálægt, sem bærinn gæti verið kendur við, því að Króksá er lítilfjörleg á, og liggur langt frá báðum bæjunum. Auk þess vita menn eigi til, að Vellir hafi nokkurn tima verið höfðingjasetur í fornöld. Hjá Ásgeirsá vantar aptur á móti „völlu“ þá, er orðið gæti verið dregið af. Og ef „Eyvellingagoðorð“ væri hið rétta nafn, þá getur það því síður átt við þessa 2 bæi. Eigi þekki eg heldur neitt annað örnefni í Húnavatnsþingi, sem „Ávellingar“ eða „Eyvellingar11 gæti verið kendir við. J>að hefir áður verið skoðun mín, að nafnið væri dregið af þvi, að búð sú á fingvelli, 1) Kaalund : Hist. topogr. beskrivelse af Island II. b. 25. bls. neðanmáls, sbr. »Tillæg og rettelser«. Safn til sögu Is- lands I. b. 377. bls. sbr. »Leiðréttingar«. Bandam. s. 1. k.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.