Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 24

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 24
24 gengið í ætt Ævars og Holta landnámsmanns1. Vist er um það, að Bandamannasag'a getur um þórarin spaka Langdolagoða, og að þ>órarinn þessi er talinn Qórði maður frá Holta, og eins vist er hitt, að Gríss Sæmingsson frá Geitaskarði í Langadal er talinn þing- maður Húnröðar Véfroðarsonar Ævarssonar hins gamla, og að bæði Vatnsdola og Hallfreðar saga segja, að Húnröðr hafi búið að Móbergi í Langadal, og þar telur og Landnáma föður hans Véfroð2. það getur verið, að þ>órarinn spaki, sá er nefndur er í Banda- mannasögu, haíi átt goðorð í Langadal á þeim tima, sem Bandamanna saga fer fram; það eru svo litlar sögur til frá þeim tima, að það er eigi hægt að sjá, hvort sagan hefir rétt fyrir sér, en ekki hefir sú saga hið bezta orð á sér. En hitt er alveg ósannað og meira að segja ólíklegt, að nyrðsta goðorðið i Húna- vatnsþingi hafi að staðaldri eða frá upphafi gengið í ætt þeirra Ævars og Holta, og þar sem Guðbrandur Vigfússon ætlar, að þórarinn sá, er getið er um í Heið- arvígasögu, hafi verið af ætt Holta, þá er það alveg á móti Landnámu og Bárðarsögu Snæfellsáss. Land- náma segir, að þorgils gjallandi hafi komið út með Auðunni skökli, og hafi þ>orgils verið faðir „þ>órarins goða“, og í Bárðar sögu er sagt, að J>órarinn spaki, „fóstri Vígabarða“ hafi verið son þ>orgils gjallanda, og í Heiðarvígasögu er þórarinn lika nefndur goði3. þ>að eru allar líkur til, að nyrðsta goðorð þingsins hafi í 1) Safn til sögu íslands I. b. 385. bls. 2) Bandam. s. 9. bls. (útg. 1850). Landn. 3. p. 5. k. (ísl. s. I. b. 186. bls.). Hallfreðar s. 10. k.; Vatnsd. s. 47. k. (Fomsögur Leipz. 1860, 109. og 77. bls.), sbr. Fms. III. b. 20. bls. 3) Landn. 3. p. 1. k. (ísl. s. I. b. 171. bls.). Bárðar s. 12. k. (25. bls. í útg. Guðbr. Vigfússonar). Heiðarv. s. 23, k. 340.—341. bls.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.