Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 38
190
á hverjum stað, og þurkaði leðjuna; upp úr þessari
leðju spruttu alls 537 plöntur. í leðjunni g’eta eflaust
lfka egg smárra vatnadýra borizt. Á eyjum, sem
nýrisnar eru úr sæ, eiga plönturnar mjög hægt með
að vaxa í fyrstu. ef jarðvegurinn er hentugur, af
því þar eru engir eða fáir keppinautar, Yfir höfuð
að tala stendur útbreiðsla vatnsdýra og vatnsjurta
í sambandi við ferðir fuglanna, sem allt af eru
á ferðinni milli vatnanna, og opt fljúga land úr
landi.
Tegundirnar eru að tiltölu miklu færri áeyjum
úti í reginhafi, heldur en á jafnstórum blettum á
meginlöndunum. Á Nýja-Sjálandi og eyjunum þar
í kring eru að eins góo tegundir af blómjurtum, en
í hinu litla Cambridge-skíri á Englandi eru 847 teg-
undir, og á Anglesea, sem er lítil eyja fast við
land, eru 764 tegundir, Á eynni Ascension voru
ekki nema eitthvað 6 blómjurtategundir, þegar menn
komu þar fyrst; nú eru fleiri jurtir komnar þangað,
er hafa flutzt með mönnum. Á St. Helenu hafa
aðkomujurtir og aðskotadýr nærri eytt öllum
hinum upprunalegu jurtum og dýrum. þ>ó tegunda-
talan á eyjum sé lítil, þá eru þar að tiltölu miklu
fleiri einkennilegar tegundir, sem hvergi eru til
annarsstaðar. F.f tegundir einstöku sinnum með
löngu millibili flytjast á fjarlæga ey, og verða að
keppa við þær tegundir, sem fyrir eru, þá eru hin-
ar nýju tegundir mjög hvatar til breytinga, meðan
þær eru að laga sig eptir náttúrunni í kring, og
myndast þannig fljótt nýjar tegundir. Á Galapa-
gos-eyjunum eru 26 tegundir af landfuglum; afþeim
eru 21 tegund alinnlend, og eru hvergi annarsstað-
ar til; en af 11 sjófuglum, sem þar eru, eru aðeins
tveir innlendir, enda geta sjófuglar miklu optar en
landfuglar komizt til eyjanna. Á Bermuda, sem