Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Side 9

Eimreiðin - 01.09.1904, Side 9
169 útgjalda, sem ganga til að auka embættismannafjöldann, sem þó var harla mikill áður. fví minna sem þjóðfélagið er, því hættara er við því, að embættisstéttin vaði uppi og verði drotn- andi hjá þjóðinni, að óhæfilega mikil útgjöld gangi til hennar, og einkum að hún sogi til sín óhæfilega mikinn hluta af beztu starfs- kröftum þjóðarinnar til stórmikils hnekkis fyrir þær atvinnugreinir, sem eiga að halda landinu uppi í efnalegu tilliti. Jafnframt lítur svo út, sem mikil þörf sé á að gera þjóðina hæfa til að inna praktisk störf af hendi; einkum nú, þegar svo mikið peningaafl er fengið inn í landið, sem með nokkurri sannsýni verður krafist, er það vafalaust það, sem mest nauðsyn er á, til þess að landið geti tekið framförum, að reynt sé að hefja allan almenning til meiri þroska, efla táp hans og starfsþrek og gera hann hæfari til að fást við hrein og bein praktisk störf. Að þessu marki — bæði að alþýðumentun yfirleitt og atvinnumentun í öllu því, er lýtur að hinum tveimur aðalatvinnugreinum landsins, landbúnaði og fiski- veiðum, ættu menn að beina öllum kröftum sínum núna fyrstu árin, jafnvel þótt það kynni að verða þess valdandi, að menn yrðu að fresta öllum stærri fjárveitingum til vitabygginga, hafnargerða og brúargerða. Að vísu er vöxtur og viðgangur slíks þroska hjá þjóðinni aðallega undir ýmsu öðru kominn en löggjafarvaldinu, og íslendingum hættir víst við að gera altof mikið úr mætti löggjafar- valdsins og stjórnarskrifstofanna til að efla atvinnuvegi landsins; en það, sem unt er að gera, það á líka að gera; og stjórnarvöldin geta að minsta kosti lagt fram það fé, sem þörf er á. Skyldi það nú reynast nauðsynlegt, til þess að geta unnið að þessu marki eða öðrum, að útvega landssjóðnum enn meiri reglu- legar tekjur, þá yrði að ná þeim með tollum. Auknar tolltekjur má fá með tvennu móti, annaðhvort með því, að hækka þá tolla, sem fyrir eru, eða með því, að leggja toll á fleiri vörutegundir en áður, Sú hugsun, sem komið hefur fram á alþingi, að leggja toll á allar aðfluttar vörur, er næmi nokkrum krónum af hverju hundraði af verðmæti þeirra, er vafa- laust afaróheppileg. Vegna framleiðslunnar í landinu yrðu menn þó að hafa önnur eins framleiðslumeðul eins og salt, kol og timbur undanþegin tollinum, og af réttlætisástæðum yrðu menn að undan- þiggja bæði korn og mjöl. En menn ættu að vorri hyggju heldur ekki að fara þá leiðina, sem mönnum annars virðist geðjast bezt að á íslandi, að leggja toll á fleiri vörutegundir, einkum vefnaðar-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.