Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Blaðsíða 56

Eimreiðin - 01.09.1904, Blaðsíða 56
2IÖ Pað hefur verið margsinnis tekið fram að undanförnu bæði utan þings og innan, að oss riði lífið á að fá stjórn, sem bryti bág við þær stjórnarreglur, sem hingað til hefur verið fylgt af afturhaldsstjórnendum vorum. Vér þyrftum að fá það sem Danir kalla »systemskifte«, — reglulega og einbeitta framfarastjórn, stjórn, sem beittist fyrir framfaramálum þjóðarinnar og hefði bæði vilja og vit á að hrinda því í lag, sem aflaga fer. Til þess að þetta gæti orðið, þurfti stjórnin að vera þannig skipuð, að þekking hennar á landsmálum yrði sem margbreyttust og hún sjálf hefði ákveðnar hugmyndir og fyrirætlanir um hvað gera ætti til þess, að koma landinu og atvinnuvegum þess upp. Pegar nú litið er á skipun hinnar nýju stjórnar, verður ekki séð, að neitt bóli á þess konar breytingu frá því, sem verið hefur að undanförnu, heldur er beint siglt í kjölfar hinna gömlu hægri- stjórna. Peirra regla var að skipa bæði flest ráðherraembættin og öll skrifstofuembættin eintómum lögfræðingum, en á því var strax gerð mikil breyting í Danmörku, þegar vinstristjórnin kom til valda þar. Pá var bóndi kjörinn í einn ráðherrasessinn, barna- kennari í annan (báðir ólærðir menn), tveir ritstjórar í þriðja og fjórða o. s. frv. Auk þess vóru mörg hinna æðstu skrifstofu- embætta skipuð mönnum af ýmsum stéttum. Sama er og gert í Noregi og víðast annarstaðar. Hér var nú ekki nema um eitt ráðherraembætti að ræða, og úr því að svo hittist nú á, að í það var skipaður lögfræðingur, þá var því meiri ástæða til að skipa skrifstofuembættin þannig, að þekking stjórnarinnar yrði sem margbreyttust. En um það hefur nýi ráðherrann okkar ekki skeytt. Hann hefur ekki getað slitið sig frá hægrireglunni gömlu (sem Danir álíta að hafi gert þeim mestan skaða á síðustu öld- inni), að skipa eintóma lögfræðinga í öll skrifstofuembættin. Flestum virðist þó sem það mundi hafa orðið líklegra til þjóð- þrifa að fela stjórn atvinnumála og samgöngumála einhverj- um góðum og reyndum bónda íeins og gert var með atvinnu- málin í Danmörku), heldur en ungum lögfræðiskandídat, sem enga reynslu hefur í þeim efnum. Miklu nær virtist liggja að skipa í þetta embætti menn eins og Pétur á Gautlöndum, Guðjón Guð- laugsson eða Hermann Jónasson, svo vér nefnum aðeins menn úr sjálfum þingflokki ráðherrans, með því honum virðist næsta óljúft að fara nokkuð út fyrir sinn eigin flokk í vali sínu. Svipað mætti segja um forstöðu fjármálanna. Bæði í Danmörku og Noregi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.