Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Qupperneq 42

Eimreiðin - 01.09.1904, Qupperneq 42
202 Ef guðsandi tekur sér bústað í einhverjum líkama, ætti það að sjást á útliti hans. En nú segja kristnir menn sjálfir, að Kristur hafi verið óálitlegur og herfilegur ásýndum. Öll kenningin um guðsson er ekki annað en misskilningur á orðum gamalla hugspekinga, er höfð eru um heiminn, sem guð hefur skapað, til að tákna guðdóm hans. Kristnir menn segja raunar, að mennirnir myndu ekki hafa kannast við guð, ef hann hefði ekki gert sig áþreifanlegan skynfærum vorum. »En slíkt er ekki mál mannsins né sálarinnar, heldur holdsins. Heyri þeir þá, blauðir menn og holdlegir, ef þeir annars fá nokkuð skilið: Því að eins fáið þér séð guð, að þér skjótið loku fyrir skynfæri yðar, og horfið upp á við í hug yðar, og að þér hverfið frá holdinu og ljúkið augurn sálar yðar upp. Og ef þér leitið leiðtoga á þeirri leið, verðið þér að forðast táldræga trúða, er halda að yður skuggamyndum, svo að þér verðið yður ekki til athlægis með því að smána þá guði sem svipi, er gerðir eru sýnilegir, en sjálfir tignið þér þann, sem í rauninni er miklu vesælli en svipur og jafnvel ekki svipur framar, heldur liðið lík«. Vitnis- burðir spámannanna, er kristnir menn eru altaf að vitna í, eru einskis virði. »Margir ónefndir menn láta eins og spámenn, og það þótt það sé ekki nema nauðalítil átylla til, bæði í helgidómum og utan þeirra, og stundum fara þeir um sem förumenn og sækja heim herbúðir og borgir. Hafa þeir þá alt þetta á hraðbergi og eru vanir að þykjast miklir af: Ég er guð eða guðssonur eða guðlegur andi. Ég er kom- inn af því að heimslok eru í nánd, og þér, menn, eruð glataðir sakir misgerða yðar. En ég skal frelsa yður og þér munuð sjá mig koma aftur með himnesku veldi. Sælir eru þeir, sem ákalla mig. Á alla aðra mun ég slöngva eilífum eldi, bæði menn og lönd og borgir. í’eir skulu árangurslaust iðrast og andvarpa, er ekki kannast við hegningu þá, er þeir eiga í vændum, en þá, sem hafa trúað á mig, skal ég varðveita um aldur og æfi. í’egar þeir hafa látið sér þessar ógnanir um munn fara, bæta þeir við óljósum, vitlausum og öldungis óskiljan- legum orðum, er jafnvel hinn vitrasti maður botnar ekki vitund í. Svo marklaus og óskýr eru þau. En þau gefa hverjum heimskingjanum eða spjátrungnum algerlega fijálst svigrúm til að tileinka sér það, er þeim þykir eitthvað varið í«. Að lokum leitast Celsus við að færa kristnum mönnum heim sanninn um, að það sé ekki svo afskaplega stórvægilegt, er þeim og heiðingjum beri í milli. Kristnir menn hafna goðalíkneskjum. í’að gera líka önnur trúarbrögð, svo sem trúarbrögð Persa, og enginn skyn- samur maður gerist framar sekur um að hafa hausavíxl á goðalíkneskju og guði sjálfum, sem Heraklít hefur átalið fyrir löngu. Auk þess halda kristnir menn sjálfir, að guð hafi skapað manninn í líkingu sinni. Jafn- vel þó að þeir haldi, að líkneskjurnar séu ekki ímynd guðanna, heldur andanna, hver skaði er svo í því að ákalla andana? I’eir hafa þó af guði fengið hver sinn hluta mannlífsins til umráða, og úr því að kristnir menn vilja lifa hér í heimi og þiggja gjafir andanna, hví þá ekki gera þeim þakkir fyrir þær? Þar sem þeir segja, að enginn kunni tveimur herrum að þjóna, þá sýnir það aðeins sérhneigingar þeirra. Guð er ekki svo smásmug- ull, að hann reiðist því, að menn heiðri undirgefna þjóna hans. í’eir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.