Eimreiðin - 01.09.1904, Page 48
208
Pað er og margt skylt með þeim Celsusi, og það í einstökum
atriðum, svo sem þegar sýnt er fram á mótsagnir í frásögunum
um upprisuna. Pað eru og margar ágætar athugasemdir gerðar
við þjóðsögur gamla testamentisins. »Meðhjálp« Adams varð
ógæfan hans. Höggormurinn var í rauninni góðgerðamaður hans,
en guð öfundsjúkur, er hann vildi ekki, að mennirnir kynnu »greinar-
mun góðs og ills« og lifðu að eilífu. Sögunni um Babelsturninn
er líkt við Alóadana í Hómer, er ætluðu að gera áhlaup á him-
ininn, og slíkt kallað barnaleg tilraun til að skýra mismun tungn-
anna, er hljóti að móðga guð. Andspænis ruddalegri manngyðis-
kenningu þessara eddusagna er skipað fagurri lýsingu Platóns á
heimsskapnaðinum. Andspænis þröngsýnum og þóttafullum hugar-
burði um úrvalning Gyðingalýðsins miklu háleitari platónskum
skilningi á guði sem sameiginlegum allra föður og konungi. Tug-
um þúsunda eða — til að gera kristnum mönnum það til geðs —
þúsundum ára saman hafði guð látið alheim eiga sig og vaða í
villum myrkranna til að taka að sér litla þjóð, er fyrir tæpum
tveim þúsundum ára tók sér bólstaði í nokkrum hluta Gyð-
ingalands. En annars verða menn að játa, að hann hefur búið
Grikki hið bezta í öðrum efnum. Hvað hefur eftirlætisgoðið hans,
Gyðingaþjóðin, á móts við vísindi og bókmentir Grikkja, hugspek-
inga og stjórnmálamenn.
Vér rekumst líka aftur á árásirnar á kenninguna um upprisu
holdsins, fórnarhræðslu kristinna manna, þótt þeir væru ósparir á
fórnir í gamla testamentinu, ákall þeirra á Krist, jafnhliða einum
guði, er gamla testamentið birtir og boðar,1 og á sambandið við
gyðingdóminn. Skipunum hans hlýði kristnir menn ekki, þótt þær
séu kallaðar guðsboð og þó að Kristur að eigin sögusögn væri
kominn til að fullkomna lögmálið. Par er og veizt að rangfærsl-
unum á spádómunum og þær ræddar rækilega, athugasemdir
Celsusar við kristilegt siðalögmál endurteknar ásamt fleirum smá-
atriðum. Tíu boðorðin eru tilfærð og þess getið, að þau séu
sameiginleg með öllum þjóðum, þeirn er nokkurn veginn eru sið-
aðar, nema hvíldardagsboðorðið, er Kristur hafi numið úr gildi, og
boðorðið um einn guð, er sýni, að guð þeirra sé mjög afbrýðis-
1 Úr Matth. 28, 19 er þetta tilgreint til að sanna fjölgyði þeirra: »Farið og
gerið allar þjóðir að lærisveinum og skýrið þær í nafni föður, sonar og heilags
anda«.