Eimreiðin - 01.09.1904, Síða 75
235
Annar þáttur fer fram á Englandi í höll og hallargarði Aðalráðs konungs
ráðlausa í Lundúnum. Gunnlaugur hefur fengið afarmikið gengi hjá konungi bæði
fyrir kvæði sín og hraustlega framgöngu. Hann hefur friðað danska víkinga þar í
landi. En Hrafn beitir brögðum til að fá víkingana til að gera uppreist og notar til
þess finska seiðkonu, er Katla heitir og er ambátt hans. Er það gert til þess að
tefja fyrir brottför Gunnlaugs. Hann er staðráðinn í að fara heim til íslands, með
því 3 ár eru nú næstum liðin, og halda honum engin bönd. En konungur vill fyrir
hvern mun halda honum, því hann treystir honum einum til að berja á hinum dönsku
víkingum. Konungssystir, Ogive, hatar Gunnlaug, af því hann hefur hafnað blíðu
hennar og metið Helgu meira og talið hana fegurri. Bera þau Hrafn og Ogive nú
ráð sín saman og tekst þeim að fá konung til að sverjast í fóstbræðralag við Gunn-
laug og láta hann (G.) ekkert vita um uppreist Dana fyr en það er um garð gengið.
Þetta dugir, því fóstbræðraeiðurinn er svo helgur, ásamt heitinu um að styðja hvor
annan og ekki skilja, er í nauðir rekur, að Gunnl. þolir ekki að honum verði núið
því í nasir, að hann hafi brotið þann eið og skilist við sinn tigna fóstbróður, kon-
unginn, einmitt þegar honum lá mest á. Hann verður því kyr, vinnur sigur á vík-
ingum, en verður sár og liggur lengi í sárum. Hann gerir orð til íslands um hvað
hefti för sína, en skipið, sem orðsendinguna flytur, ferst í hafi. Hrafn fer þegar út
til íslands, er Gunnl. er kyrsettur, biður Helgu og segir Gunnlaugs ekki von, því hann
sé í þingum við konungssystur á Englandi.
í’riðji þáttur fer fram á Borg og er þar lýsing á brúðkaupi þeirra Hrafns
og Helgu og ýmsu í sambandi við það. Gunnl. kemur þangað rétt eftir að búið er
að gefa þau saman í kirkjunni (af í’angbrandi ?). Gunnl. gefur Helgu í brúðargjöf
skarlatsskikkju, sem Aðalráður hafði gefið honum. Hann skorar á Hrafn til hólm-
göngu, en fær þá að vita, að hólmgöngur séu afteknar með lögum, með því þær
þyki ekki hæfa í kristnum sið. Stefnir þá Gunnl. máli þeirra til alþingis og vill fá
vígslu Hrafns og Helgu ónýtta og sér dæmda konuna.
Fjórði þáttur fer fram í seli Hrafns. Kemur hann af þingi og segir Gunnl.
hafa fallið á málinu, því Þangbrandur hafi vitnað á móti honum og lýst bölvun
kirkjunnar á því, ef þetta fyrsta brúðkaup í kristnum sið væri rofið, enda Gunnl.
brostið sannanir fyrir því, að það hafi verið honum ósjálfrátt, að hann kom ekki
heim í tæka tíð. Verður nú senna milli þeirra hjónanna, Hrafns og Helgu og batnar
ekki um, er Katla gloprar því fram úr sér í ölæði, hverjum brögðum Gunnl. hafi
verið beittur á Englandi. Hrafni er nú sagt, að honum hafi verið reist níðstöng á
Borg og fer hann af stað þangað. ]?á kemur Gunnl. í selið og segir Helga honum
svikin við hann á Englandi og biður hann taka við sér. Flýr hann þá með hana
út í þormóðssker og bíður þar sektardóms.
Fimti þáttur fer fram á þormóðsskeri. Gunnl. er þá kominn í sekt og lifa
þau Helga þar á sjófangi. þar kemur Björn Breiðvíkingur á drekaskipi frá Hvítra-
mannalandi og gefur Gunnl. skip sitt, en sezt sjálfur að á íslandi. Síðar kemur
Hrafn þar (með föður sínum, bróður og Kötlu) og býður Gunnl. hólmgöngu. Verður
Hrafn sár tll ólífis, en Gunnl. skeinist lítið eitt; en Katla hefur roðið sverð Hrafns
eitri, svo skeinan reynist hættulegri en á horfðist í fyrstu. ]?á kemur þar þorsteinn
Egilsson með liðsafnað og ætlar að taka Gunnl. höndum, en hann grípur þá Helgu
í fang sér og ryðst með brugðnu sverði gegn um mannþröngina út á dreka sinn,
heggur á festar og lætur frá landi. Tekur nú eitrið að verka og álítur hann þá
snjalla^t að gera bálför þeirra Helgu að fornum sið með því að bruna á brennandi
dreka til hafs og kveykir því í drekanum. Verður Hrafn sjónarvottur að þessari
bálför þeirra Gunnl. og Helgu í andarslitrunum og deyr svo í örmum Kötlu vinu sinnar.