Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 8
8
VI. Laun starfsm. goldin af landsfé, en ekki beint úr landssjðbi:
i. Laun stjómar og starfsm. við Landsbankann (áætluð) 22,000 kr.
2. Laun 3 ráðunauta Búnaðarfélagsins.................. 3,600 —
3. Laun mjólkurskólakennarans (áætluð)................ 2,000 —
samtals 27,600 kr.
VII. Laun embættismanna goldin af landsmönnum:
Laun eða fastar tekjur presta (Alþt. 1899, C. 542) .... 170,000 kr.
Til þess að gera þetta yfirlit enn glöggara setjum vér hér að
lokum yfirlit yfir aðalupphæðirnar:
I. Laun og embættiskostnaður greiddur úr landssjóði:
1. Laun embættismanna.................. 248,050 kr.
2. Gjöld við embættisrekstur............. 27,450 —
3. Laun opinberra starfsmanna............ 81,456 —
4. Uppeldiskostnaður embættismanna. . . 20,808 —
5. Eftirlaun og styrktarfé............... 60,000 — 437,764 kr.
II. Laun embættism. og starfsm. ekki greidd úr landssjóði:
1. Laun starfsm. goldin af landsfé.... 27,600 kr.
2. Laun presta (goldin af landsm.) .... 170,000 — 197,600 —
samtals 635,364 kr.
Hér hafa menn þá meginið af embættiskostnaðinum íslenzka
og er það eigi alllítil súpa, rúmlega 8 kr. á hvert mannsbarn á
landinu (79,000 manns). Og þó er svo langt frá, að hér sé öllu
til skila haldið, sem telja mætti til embættiskostnaðar landsmanna,
að slept er öllum VIII. flokknum, öllum aukatekjum og ýmsum
fleiri smáupphæðum.
Samkvæmt siðustu fjárlögum eru allar tekjur landssjóðs á
fjárhagstímabilinu taldar 1,668,570 kr. og verða þá árstekjur hans
834,285 kr. Sé nú allur embættiskostnaðurinn borinn saman við
þær, verður hann rúmlega 76°/« af árstekjum landssjóðs. Væri
því allur þessi kostnaður greiddur úr landssjóði, mundu rúmir 3/4
af öllum árstekjum hans ganga til hans, og yrðu þá ekki eftir
nema 198,921 kr. til allra annarra þarfa (atvinnumála, samgöngu-
mála, alþýðumentunar o. s. frv.). En að réttu lagi má þó eigi
miða laun presta, né starfsmanna Landsbankans og Búnaðarfélags-
ins við landssjóðstekjurnar, heldur aðeins þann embættiskostnað,
sem greiddur er beint úr landssjóði eða þá fyrirfram af tekjum
hans (laun umboðsmanna og tollheimtulaun sýslumanna). Sé sá