Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 13
13
nú reyndar alls ekki eins greiðar á sumum svæðum í Manítóba,
eins og margur kann að ætla. En þá viljum vér benda mönnum
á annað land, sem nær liggur, þar sem samgöngurnar eru alls
ekki greiðari en á íslandi, heldur öllu erfiðari. Og það er grann-
land okkar Færeyjar. Á Færeyjum eru 15,000 íbúar, dreifðir yfir
fjölda af smáeyjum, og þó er þar einn einasti dómari, sem
svarar til sýslumanna vorra, hinn svonefndi »Sorenskriver». Og
ekki fara neinar sögur af því, að réttarfarinu sé þar ekki alveg
eins borgið og á íslandi, þar sem undirdómararnir (sýslumenn)
eru 18.
En ef þessi skipan kæmist á, hvernig ætti þá að fara með
störf bæjarfógetanna, munu menn spyrja. Pví er auðsvarað.
Pau ætti að sjálfsögðu (að öðru leyti en dómstörf snertir) að fela
kosnum bæjarstjórum, launuðum úr bæjarsjóði, þar sem störf-
in væru svo umfangsmikil, að virðingin ein væri ekki nóg laun.
Pví sjálfsagt væri að veita ýmsum hinna stærri verzlunarstaða
bæjarréttindi, þar sem slíkt gæti verið til hagsmuna fyrir hlutað-
eigandi kauptún.
Við þetta skipulag ynnist tvent í einu: Fyrst að unt væri
að greina dómsvaldið algerlega frá umboðsvalditiu,
sem er ákaflega mikilsvert fyrir þjóðfélagið, en nú ekki nema að
litlu leyti gert á íslandi. í annan stað mundi þetta skipulag spara
landssjóði afarmikið fé. Setjum að hver hinna fjögra dómara eða
sýslumanna fengju 3,500 kr. að launum (eins og yfirdómararnir
eiga nú að hafa að lögum) og 1000 kr. í ferðakostnað hver. Pað
yrðu alls 18,000 kr. Tollheimtulaunin yrðu þau sömu og áður,
um 10,500 kr., en gengju aðeins til annarra (sérstakra tollheimtu-
manna). Petta yrðu samtals 28,500 kr. En nú er launafúlgan til
sýslumanna og bæjarfógeta, eins og áður var sýnt, 66,900 kr. og
verður þá sparnaðurinn á henni 38,400 kr. En þar við bætist, að
landssjóður losnar við að greiða eftirlaun til 14 sýslumanna, ekkna
þeirra og barna, þar sem þeir yrðu nú 4 í staðinn fyrir 18 áður.
Kæmust nú allir þessir 14 sýslumenn á eftirlaun, sem náttúrlega
gæti fyrir komið, mundi eftirlaunafúlga þeirra nema 20—30,000
kr. En með því að varla þarf að gera ráð fyrir að nema nokkur
hluti þeirra lendi á eftirlaunum í einu. viljum vér þó ekki telja
sparnaðinn á eftirlaunum sýslumannanna sjálfra nema 7,000 kr.
En þar við bætist sparnaðurinn á eftirlaunum ekkna þeirra og
barna. Samkvæmt athugasemdunum við síðasta fjárlagafrumvarp