Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Page 29

Eimreiðin - 01.01.1905, Page 29
29 sjónum yfir hinni föstu stöðu minni í Oxford og hvað ég var þar óháð- ur og frjáls. f’egar við unnum að einhveiju saman, var hann altaf viðkunnanlegur í byijuninni, en snerist bráðlega og varð þá önugur og fann sér alt til, hvað sem ég svo gerði, og ég varð því að láta hann sigla sinn eigin sjó og gerði sjálfur hið sama«. S. Bl. Skriðdyrsháttur. Það hefur komið í ljós síðan nýja stjórnin settist að völdum á Islandi, að flokkur sá, sem hana styður — eða að minsta kosti blöð hans — hefur talið það skyldu sína að verja allar gerðir stjórnarinnar, hversu öfugar sem þær væru eða óheillavænlegar fyrir landið. En slíkur skriðdýrsháttur gegn stjórn sinni er harla ósamboðinn sjálfstæðum mönnum og lítt til þess fallinn, að efla þjóðræði í landinu og ala upp góða stjórn. Ekki getur heldur hjá því farið, að slíkt komi þeim í koll fyr eða síðar, er svo leggj- ast flatir fyrir valdhöfunum, að þeir þora hvorki að æmta né skræmta, þótt framin sé bersýnileg óhæfa. Afleiðingin verður auðvitað sú, að þjóðin missir traust á þess konar stjórnarsleikjum og hættir að trúa þeim, jafnvel þótt þeir hafi stundum á réttu að standa. Hins vegar stælist stjórnin upp í því, að leyfa sér hvað sem vera skal, og álítur að alt, sem hún gerir, sé »harla gott«. þannig hefur það gengið í öðrum löndum, þegar slíkt hefur komið fyrir, og sama mun reyndin á verða á íslandi. Sú var tíðin í Noregi, að líkt þótti við brenna þar, enda fór stjórnarfarið dagversnandi, unz óánægjan var orðin svo mikil í landinu, að beztu menn þjóðarinnar sáu, að ekki mátti lengur við svo búið standa. Gamla stjórnin féll og önnur ný var skipuð. Og nú ætla stuðningsmenn hennar ekki að brenna sig á sama soðinu, heldur segja henni sjálfir ótæpt til syndanna, þegar hún gerir glappaskot. Vér álítum að ekki sé ófróðlegt fyrir íslenzka lesendur um þessar mundir að sjá um þetta grein, sem birtist í blaðinu »Verdens Gang« 30. okt. 1904. Par segir svo: »Nú eru orðin svo mikil brögð að aðfinningunum við stjórn-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.