Eimreiðin - 01.01.1905, Page 52
52
fjögra hesta afl, tvo í senn eftir sporvegi til eltivélarinnar. Eftir
að önnur hliðfjölin á vögnunum er tekin frá er steypt úr þeim,
báðum í senn, sínum frá hvorri hlið niður í eltivélina. Á 8. mynd
er gufuvagninn með einum vagni aftan í, og fyrir ofan sést vagn-
inn steyptur. Sporvegurinn sést á 7. mynd. Endinn á honum er
þrískiftur, og þar sem álmurnar kvíslast frá aðalsporinu er þrí-
skiftur sporskiftir, og geta því vagnarnir eftir vild runnið inn á
hverja álmuna sem vera skal. Jafnframt því að mórinn er graf-
inn burt, eru álmurnar lengdar, svo vagninn er einlægt rétt við
móbakkann. Pegar álmtirnar eru orðnar i5om. á lengd er spor-
skiftirinn fluttur. Frá hverjum vagni er tekið 8 m. breitt belti.
Beltið, sem tekið er fyrir í einu, er því 24 m. á breidd og er
haldið áfram með það þvert yfir mýrina. Að því loknu er aðal-
sporið flutt 24 m. til hliðar og aptur byijað á þeirri hlið mýrar-
innar, sem næst er vélinni. Sporvíddin er nocrn.; mesti halli á
sporveginum er 1:70 og minsti geisli í bugðunum er 20 m. Á
7. mynd sést að gufuvagninn getur ekið inn að skýlinu »b« meðan
tómu vögnunum er skotið frá eltivélinni út á aðalsporið. Begar
svo gufuvagninn hefur ekið fullu vögnunum (aftur á bak) að vél-
inni, ýtir hann tómu vögnunum á undan sér, þangað sem þeir eiga
að fara.
Eltivélin (sjá 9. mynd) er 8 m. löng trérenna, sem er 57 cm.
á breidd og dýpt. Eftir henni miðri liggur járnás, og á hann eru
festir — eftir skrúfulínu — margir bognir og undnir stálknífar.
Ásinn snýst 50 snúninga á mínútu hverri, og við það mylja og
tæta knífarnir móinn í sundur og blanda honum saman við vatn,
unz hann er orðinn að hálfþykkri, samkynja leðju. Jafnframt