Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 57
57
smi&juna, og draga hestar hann, en móleðjan er flutt út á þerri-
völlinn í tvíhjólaðri kerru með djúpum kassa (á dönsku Gumpe-
kasse). Mannaflinn var: i maður í mógröfinni, I við eltivélina og
i mótaði móinn. 2 drengir með 2 hestum aka mónum að og frá
eltivélinni. Dagsverkið er snálægt 7 málestum. Einstöku litlar
móverksmiðjur eru reknar með hestafli í stað mótórs eða gufuvélar.
Litið eitt frábrugðnar þessum verksmiðjum eru verksmiðjurnar
í Herning og Moselund. Aðalmunurinn er, að þar er mórinn
steyptur í færri og stærri mótagrindur, sem svo eru hreyfðar til
og frá með lyftivél á hjólum. Ennfremur er á báðum stöðum
hafður gufuvagn til að draga móleðjuvagnana, — sem eru mikln
stærri en í Sparkær — út á þerrivöllinn, en mórinn er dreginn að
eltivélinni með vírstrengjurn, er aðalgufuvélin hreyfir. Sjálfar elti-
vélarnar eru líka talsvert frábreyttar. En öll vinnuaðferðin er í
aðalatriðunum hin sama og við 0kær-verksmiðjuna, svo ég sleppi
að lýsa þeim nánar.
Á nokkrum stöðum í Danmörku hefur Sparkær aðferðinni
verið breytt þannig, að eltivélin er hreyfanleg og þá venjulega
rekin með hestafli. í stórri mýri nálægt Pindstrup-járnbrautarstöð,
voru í sumar nálægt því 30 slíkar vélar. Eltivélin er að gerðinni til,
lík hinum föstu, nema minni, svo sem 2 m. á lengd. Frá hesta-
ganginum liggur langur járnás í 4 stykkjum, svo að hægt er að
flytja eltivélina fjórum sinnum, án þess að flytja hestaganginn,
bara með því að taka burtu part af ásnum. Lítil dæla, sem
ás eltivélarinnar hreyfir, dælir vatn úr mógröfinni upp í eltivél-
ina. Aðferðin er þannig: Eltivélin er sett rétt á grafarbakkann,
svo að maður sá, sem stendur í gröfinni, getur kastað mónum í
þann enda eltivélarinnar, sem vatnið er dælt inn í. Vélin eltir
nú móinn og mjakar móleðjunni jafnframt yfir í þann endann sem
frá dælunni snýr. IJar rennur leðjan út í grunnann kassa, við
hliðina á eltivélinni. Ur þessum kassa er leðjunni mokað upp í
hjólbörur og ekið eftir plönkum út á þerrivöllinn, sem er sjálf
mýrin, og steypt þar í mót. Tveir menn aka móleðjunni út og
steypa hana. Mótagrindurnar hafa 30 hólf og fylla einar hjólbörur
hverja mótagrind. Eltivélin með hestagangi og öðrum áhöldum
kostar sem næst 300 krónur. Par sem ég sá, var vinnan ákvæð-
isvinna. Formaðurinn, sem sjálfur leggur til vél og hest, fékk
1,50 krónur fyrir hverjar 1000 móflögur steyptar á þerrivelli. Við
þriðja mann bjó hann til 80,000 mókögla á viku, og svarar það