Eimreiðin - 01.01.1905, Page 70
70
Ritsjá.
ÁRSSKÝRSLA RÆKTUNARFÉLAGS NORÐURLANDS 1903.
Akureyri 1904. Félag þetta hefir farið vel af stað og má mikils góðs
af því vænta, enda hefir því verið vel tekið af mörgum, þar sem fé-
lagsmenn voru í árslok 1903 orðnir 665 og ýmsir höfðu gefið því
stærri gjafir. f’að á líka fyllilega skilið, að það sé stutt af alefli og
hefði átt að fá ríflegri stuðning frá alþingi, en raun varð á.
f’essi skýrsla félagsins er ekki nein þur upptalning, eins og oft
gerist með skýrslur, heldur hefir hún og inni að halda góðar ritgerðir,
sem bæði eru örvandi og fræðandi. Er þar fyrst ágæt ritgerð um störf
og verkefni félagsins eftir forseta þess amtmann Pál Briem og því
næst fleiri smáritgerðir eftir aðaistofnanda félagsins skólastjóra Sigurð
Sigurðsson. Eru þær um tilbúinn áburð, undirstöðuatriði jarðyrkj-
unnar, grasrækt, garðrækt, tilraunastöðvar, gróðursetning trjáa og runna
o. fl. og er margt og mikið á þeim að græða. Alt, sem vér höfum
séð frá hendi þessa efnilega manns, bendir á, að hann hafi hvort-
tveggja í einu: lifandi áhuga og glögt auga fyrir praktiskum aðferðum
og hveiju unt sé að koma í framkvæmd. Hver veit nema hann geti
orðið okkur einskonar íslenzkur Dalgas, ef við kunnum rétt með að
fara og látum hann og ræktunartilraunir hans njóta alls þess stuðn-
ings, sem hann á skilið. V. G.
BÚNAÐARSKÓLINN Á HÓLUM í HJALTADAL. Akureyri
1903.
í skýrslu þessari er skýrt frá tilgangi skólans, kensluaðferð, kenslu-
áhöldum, námsgreinum o. fl. Námstíminn er 2 vetur og kenslan nær
eingöngu bókleg, en skólinn útvegar þeim piltum, sem þess óska, verk-
lega kenslu í garðyrkju, grasfræsáning, plægingu, skógrækt, garðhleðslu,
vörsluskurðagjörð, hallamælingu, framræslu, veitugjörð, meðferð áburðar
og eftir atvikum skepnuhirðingu. Bóklegu námsgreinarnar eru 20 (auk
leikfimi) og mun sá enginn blár geta kallast, sem orðinn er vel heima
í þeim öllum. En lítt er það skiljanlegt að því marki verði náð á
einum tveim vetrum. Kensluaðferðin virðist mjög praktisk og náms-
greinarnar vel valdar. — Auk hins reglulega skóla er og á Hólum
haldinn bændaskóli tvisvar á ári, hálfan mánuð í hvort sinn, og eru
þar haldnir fyrirlestrar um ýms búnaðarfræði, sem að minsta kosti geta
haft hvetjandi áhrif, þó þeir að vonum ekki veiti mikinn þekkingar-
forða. Skólinn leggur mesta áherzlu á að kenna með lifandi orði og
sýningum mynda og er slíkt vel ráðið. V. G.
SIGURÐUR SIGURÐSSON: RJÓMABÚIN OG SMJÖRSÖLU-
HORFURNAR. Rvtk 1904.
í fyrirlestri þessum, sem höf. flutti á rjómabúafundi við f’jórsárbrú
29. jan. 1904, er skýrt frá vexti og viðgangi mjólkurbúa hér á landi og
útflutningi af smjöri frá þeim, ennfremur um framleiðslu smjörs og sölu