Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 73
73
sína að giftast henni og gerir það. Fara þau svo brúðkaupsferð út í lönd, til Eng-
lands, Frakklands og Ítalíu og Heiga með þeim. Verður ferðin lítt til ánægju fyrir
Þóru, því hún má jafnan hírast heima á hótellum meðan Óskar og Helga eru úti
að skemta sér. Og þó farareyririnn væri ekki af skornum skamti, hrekkur hann ekki
til í spilahúsinu í Monte Carlo, því þar tapa þau ógrynni fjár, og leiðist því Óskar
til að gefa út ávísun upp á 100,000 kr. undir nafni föður síns, landshöfðingjans, og
vottaða með nafni tengdaföður síns og falsar bæði nöfnin. Eftir heimkomuna eru
þau Óskar og Helga jafnan saman, en samlyndið milli hjónanna stirðnar meira og
meira og leiðir öll meðferðin á róru hana til dauða, eftir að hún hefir alið dóttur,
sem er skírð Elín. í sömu svifum kemur ávísunin falska fram og verður lands-
höfðingja ekki um sel, en kannast þó við undirskriftina til að bjarga syni sínum frá
tugthúsinu, en rekur hann af landi burt samstundis og lætur hann lofa að hann skuli
aldrei koma aftur til íslands. Verður h nn að rýja sig inn að skyrtunni til að borga
skuldina og veðsetja bankanum ffingvelli fyrir miklu meira en þeir eru virði. En
Magnús sonur hans býr þar áfram og streytist við að borga vextina. Smali hans
og hestadrengur heitir Jón Vídalín. Helga fer aftur til Khafnar, en Óskar til
Lundúna. Lendir hann þar í mesta volæði og niðurlægingu, unz Helga kemur
þangað og hefur hann upp úr henni með aðstoð Niels Finsens söngfræðings,
sem er sonur bæjarfógeta Finsens í Reykjavík, er síðar verður ráðherra íslands, er
stjórnarbreytingin kemst á, og landshöfðingi deyr af gremju yfir henni, þegar kóng-
urinn hefir ekki viljað verða við bón hans um að neita um staðfestingu sína. Niels
Finsen hefir kynst Helgu í Rvík og séð, að hún hafði mikla hæfileika til að verða
góð söngkona. Hefir því kallað hana til Lundúna og kostar kenslu hennar. f*au
útvega svo Óskar í sameiningu góða söngstjórastöðu fyrst í Lundúnum og síðar f
Frakklandi og fara sjálf með honum þangað. Honum græðist fé, en lendir aftur í
spilahúsinu í Monte Carlo fyrir fortölur Helgu, sem altaf hefir mikið vald yfir hon-
um. Tapar hann svo hverjum eyri og gerir sig að lokum sekan í falsspili og
sleppur því aðeins lifandi burt, að svo er látið heita, að hann hafi sjálfur ráðið sér
bana, og berst sú fregn um alt og einnig heim til íslands. En nú skilur með hon-
um og Helgu, fer hann til Lundúna og dvelur þar í kyrþey, en semur hvert söng-
verkið á fætur öðru og verður heimsfrægt tónskáld og rakar fé saman. Kallar hann
sig nú Kristján Kristjánsson og er það nafn á allra vörum, en sjálft tónskáldið
(manninn) þekkir enginn, því hann lætur hvergi sjá sig. Snýr hann nú heim til ís-
lands eftir 16 ára útivist og er þar tekið með mestu viðhöfn sem hinu heimsfræga
tónskáldi Kr. Kr., en enginn þekkir hann. Er þá faðir hans dáinn fyrir löngu, en
móðir hans Anna og dóttir hans Elín hjá Magnúsi bróður hans á ffingvöllum.
En svo er á statt fyrir honum, að hann hefir ekki getað staðið í skilum með hina
háu vexti af bankaskuldinni gömlu og á nú næsta dag að selja Pingvelli við opin-
bert uppboð. Óskar tekur þá 200,000 kr. út í bankanum (samkvæmt ávísun frá
banka hans í Lundúnum) og leggur á stað til Þingvalla í stórhríð og kemst þangað
við illan leik. En hann þorir ekki að láta vita, hver hann sé, og er hann hefir
talað við þau mæðgin og dóttur sína, sér hann að hjálp sín muni ekki þegin, ef
hann segi satt frá öllu. Afhendir hann þá Elínu dóttur sinni seðlabók sína um
kveldið, áður en hann háttar og biður hana að afhenda sýslumanni næsta morgun
áður en uppboðið byrji. En í hana hefir hann lagt seðil, þar sem á er ritað að
alt innihaldið (200,000 kr.) sé eign Elínar. Laumast hann svo burt um nóttina og
ætlar til Eyrarbakka og komast þaðan með skipi til Noregs, en verður úti á fjöll-
unum uppi við Hengilinn.