Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 9

Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 9
85 Snemma var tekið eftir því, að tegundir dýra og jurta, innan vissra takmarka, líkjast hver annarri, höfðu eitthvert ættarmót, og drógu menn þá eðlilega af því þá ályktun, að þær væru skyldar; á þessu bygðist niðurskipun í tegundir og kyn, flokka og deildir. Menn sáu, hvernig tegundirnar röðuðust niður í kerfi með stig- breytingu frá hinu einfalda til hins samsetta, að dýra- og jurta- ríkin kvísluðust út eins og greinar á tré frá lágum stofni. í*að var því eðlilegt, að menn hugðu frændsemi vera milli tegundanna og hugsuðu sér þær komnar hverja af annarri og þroskaðar til meiri og meiri fullkomnunar. I’essa hugmynd hafa menn kallað fram- þróunar- eða breytiþróunarkenning (evolutíons-theon'), og má heita, að það sé nú á tímum föst trú vísindamanna, að tegund- irnar hafi smátt og smárt breyzt og fullkomnast og hver sé af annarri runnin. Fulla og óyggjandi sönnun fyrir því, að svo sé, hafa menn reyndar ekki enn þá fengið; þrátt fyrir óteljandi til- raunir, rannsóknir og heilabrot, má þó svo að orði kveða, að breytiþróunar-kenningin sé fremur trúarsetning en sannreynd; þó líkindin séu afarmikil, þá veitir mjög örðugt að sanna. Pað lítur út fyrir, að margir vísindamenn á vorum dögum skoði breytiþró- unina eins og nokkurs konar ósannanlegt og óskiljanlegt náttúru- lögmál, sem þeir byggja á rannsóknir sínar, alveg eins og eðlis- fræðingar byggja fræðikerfi sín á ljósvakanum, sem þeir ekki vita hvað er. Flestir vísindamenn eru sannfærðir um: að tegundirnar séu sprotnar af einfaldri og lágri rót, að dýr og jurtir séu komnar af einni eða fáum frummyndum, að framsókn og þroskun byggingar sé auðséð í dýra- og jurtalífi, frá hinu lægsta til hins hæsta, og að þær tegundir, sem nú lifa, séu eftirkomendur tegunda, sem lifðu á fyrri tímabilum jarðarinnar. Flestir játa, að ekki sé að svo stöddu hægt að sanna, hvernig þetta er orðið, og um hinar hugs- anlegu orsakir eru skoðanir manna mjög á reiki. Sumir ætla, að breytiþróunin sé eingöngu efnisleg og stýrist eingöngu af aflfræðis- lögum; aðrir halda, að orsakirnar liggi í dularfullum lífskrafti eða sálarkrafti, sem gengur gegnum náttúruna, og enn aðrir halda, að orsakirnar séu aðkomandi, og liggi fyrir utan náttúruna, á því svæði, þar sem vanaleg skynjun eigi getur komist að. Rannsóknir um orsakir breytiþróunarinnar hafa nú í 50—60 ár verið aðalstarf fjöldamargra líffræðinga, og hafa þær rannsóknir leitt í ljós óteljandi merkileg fyrirbrigði í lífi dýra ogjurta, og að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.