Eimreiðin - 01.05.1910, Blaðsíða 15
9i
fuglstegund, sem enn lifir í sama landi; í egypskum tígulsteinum,
4—5 þúsund ára gömlum, hafa fundist fræ og jurtahlutar, alveg
eins bygðir eins og sömu jurtategundir, sem enn vaxa við Níl.' d
Á seinni árum hafa menn orðið varir við, að mikil afbrigði
geta snögglega komið fram hjá jurtum á mörgum einstaklingum
sömu tegundar í einu, og myndast þá nýjar tegundir. Petta kalla
menn stökkbreyting (mtitation). Sá sem mest hefir fengist við
rannsóknir þar að lútandi, er hinn hollenzki grasafræðingur Húgó
de Vries\ hjá honum spruttu nýjar tegundir út af Lamarcks
náttljósi.1 3?að lítur út fyrir, að sumar tegundir geti haldist
óbreyttar um langan tíma, en þá gerist bylting í lífi þeirra,
svo gagngerð breyting verður á skapnaði jurtarinnar. F. Galton
hefir, til þess að sýna mismuninn á smábreytingum tegunda
og stökkbreytingum, líkt tegundinni við margflötung, sem liggur
á einum fletinum, en fletirnir tákna einkenni tegundarinnar. Ef
verpill þessi verður fyrir hægum hristingi, rambar hann fram
og aftur, þangað til hann kemst í sitt gamla jafnvægi; en verði
hann fyrir harðara höggi, getur hann oltið yfir á annan flöt, og
þannig snögglega komist í annað jafnvægi.
Margir hafa gripið þessa stökkbreytinga-kenningu fegins hendi,
því hún er hið eina atriði, sem beinlínis sannar, að nýmyndun
tegunda geti átt sér stað í náttúrunni. Eftir því sem bezt verður
séð, eru breytingar þessar eftir manna skilningi tilgangslausar og
eru alls ekki bundnar við neina þá eiginleika, sem eru hentugir
fyrir tegundina; þær skýra heldur ekki orsakir þess, að lifandi
verur hafa aðlagast umhverfi eða þroskun náttúrulífsins til meiri
fullkomnunar. Pó eru slíkar breytir.gar svo víðtækar, að alt útlit
plöntunnar breytist og hin nýju einkenni verða ættgeng. Pekking
manna á stökkbreytingum þessum er enn mjög takmörkuð, og
alls ekki víst, hvort þær hafa eins almenna þýðingu eins og
sumir halda. Auk þess eru menn alveg jafnnær, eftir sem áður,
að skilja eðli og orsakir framþróunarinnar; þetta eru enn dularfull
fyrirbrigði, sem enginn skilur.
Kynbœttir alidýra og alijurta voru ein af aðalstoðum og
grundvallaratriðum Darwínskenningar, því Darwín þóttist þar hafa
fengið sönnun fyrir því, að bygging dýra og jurta væri sveigjan-
leg eftir ytri áhrifum; hann sá, hvernig hægt var að breyta kyn-
Ættgengi og kynbætur, bls. ioo—114.