Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 51

Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 51
127 góðu, að hirða molana af borðum hamingjunnar. Pað má hér um bil fullyrða, að Norðmenn vóru háðir stórveldunum og þorðu ekki að fara lengra en þetta. »Samtiden« — stórmerki- legt tímarit í Noregi — gefur það fyllilega í skyn. Og hún fer aldrei með hégómamál. Sigurður Ibsen segir það í ritgerð sinni, sem ég gat um nýlega, að »dýrt sé að vera fámenn og fátæk þjóð«. Vér íslendingar kynnum að geta skilið það, enda þótt vér berum ekki byrðar fullvalda ríkis. Annar stórmerkur Norðmaður, dr. Andr. M. Hansen, segir, að fullvalda ríki geti spjarað sig, ef það hafi á að skipa 2—8 milj- ónum manna. Sá maður er einhver fjölfróðasti maður á Norður- löndum og hinn ritfærasti. Petta segir hann og fullyrðir. En Guðmundur læknir Hannesson segir í haust í Pjóðólfi, að það sé dýrara að vera í sambandi við Dani, okkur Islendingum, heldur en okkur mundi verða að gerast lýðveldi. Bjarni Jónsson segir það sama í Höfn um sama leyti, við fréttasendil blaðsins »Pólitiken«. Peir færa engar ástæður fyrir orðum sínum. Pess þurftu þó íslendingar. Peir eiga líklega við það, nafni minn og Bjarni, að fúlgan, sem vér ætlum að gjalda á konungsborð, sé eða verði stærrþ heldur en landvarnir, þ. e, strandvarnir og meðferð utanríkismála mundi kosta okkur. »Samtiden« norska og þeir hámentuðu menn, sem að henni standa, kynnu nú samt að vita þetta heldur betur. Ekkert ríki getur verið fullvalda í raun og veru, nema það geti varið sig fyrir ræningjum a. m. k. og haft á hendi utanríkis- mál. Pað tjáir ekki að vitna til San Marínós eða annarra dverg- ríkja. Isafold gat þess nýlega í óspurðum fréttum, að þar væri útlend póststjórn, og má þá nærri geta, hvað lýðveldið það er sjálfstætt eða máttugt í raun og veru. Guðmundur læknir Hannesson mótmælir í Pjóðólfi þeirri full- yrðing minni í Eimreiðinni í fyrra: að vér séum of fátækir til að vera alveg sjálfstæðir. Eg bar fyrir fátækt einstaklinganna og fá- menni þjóðar vorrar. Hann segir, að Japanar séu eins fátækir, al- þýða þar. — Látum vera að svo sé — þó eru þar auðmenn í landi —> en nafni minn gleymir því, að Japanar eru um 40 miljónir að tölu. 9’

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.