Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 63

Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 63
139 mig, svo að ég fann á mér, að hann hafði eitthvað misjafnt á samvizkunni. Svo gengur hann samt að mér og segir heldur en ekki myndugur á svipinn, að hann ætli að minna mig á, að að- flntningsbannslögin gangi í gildi nú um nýjárið. Hann greiddi atkvæði með banninu hérna um árið, sællar minningar, og hann heldur víst altaf, að það hafi í raun og veru verið hann, sem kom þessu banni til leiðar. Að minsta kosti eru þetta einu lögin, sem ég hef heyrt hann minnast á. Eg er efins í, að hann þekki fleiri. Eg sagði svona eitthvað í þá átt, að hann þyrfti víst ekki að minna mig á þetta; mér væri það fullminnisstætt. Já, þú ert nátturlega argur yfir því, að geta ekki lengur sóað þessum fáu skildingum, sem þú átt eða eignast, fyrir brennivín. Ætli ég geri annað þarfara með þá, hreytti ég úr mér. Eg ætla ekki að fara að jagast við þig, sagði hann, ég ætlaði bara að láta þig vita, að eftir nýjár má ekkert vín ganga manna á milli. Ég vona, að þú braskir ekkert í að útvega þér vínföng framvegis, og bezt væri, að þú drykkir upp fyrir þann tíma, ef þú átt eitt- hvað, eða þá heltir því niður. Eg vil ekki eiga á hættu rekistefnu út úr slíku eða óorð á heimilið. Eg er nú eldri maður en þú, Eórir litli, sagði ég, og hef aldrei brotið nein lög enn þá. Viltu ekki bíða með að áminna mig, þang- að til þú færð einhverja átyllu til þess. Hann rausaði eitthvað meira, en ég hélt áfram að spinna hrosshárið, sneri mér frá honum og anzaði honum ekki. Svo snautaði hann burtu. Já, Pórír hefur altaf verið þokkapiltur. Að annar eins peyi skuli geta verið kominn af Gilsættinni og það í beinan karllegg! Og ekki fór honum fram, þegar hann varð good-templari, það er ég viss um, að bara hefur hann fært þetta aðflutningsbann í tal núna, dl þess að kvelja mig. Eg er nú reyndar ekki nema gamall ræfill, en samt veit ég, að það hefur verið synd af Póri að fara að særa mig með því, að ýfa þetta upp. — — Eins og hann Pórir beri nokkra virðingu fyrir lögunum! Hann hræðist þau kannske. Nei, ég er viss um, að hann veit varla, að nokkur lög eru til, nema þessi sælu bannlög. En Pórir hegðar sér eins og hann sér fólk flest gera í kringum sig — og þessvegna fer hann ekki í svartholið. Vanþakklátur við Póri! Fyrir hvað ætti ég svo sem að vera þakkláturr Eins og lífið hafi veitt mér nokkuð af því, sem það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.