Eimreiðin - 01.09.1910, Síða 6
162
landssjóður tald lán til þeirra fyrirtækja, sem beinlínis borga
sig, þó hvorki muni vert né rétt, að taka lán til annarra fyrir-
tækja, hversu þarfleg sem þau kunna að vera, og þó að þau
borgi sig óbeinlínis.
* *
*
Núverandi og verðandi verksmiðjueigendur ættu að haga
þannig vinnunni, að þeir hefðu fáa verkmenn á sumrin, því þá er
kaupgjald hátt. En hafa marga verkmenn á vetrin, og, þar sem
því verður við komið, og verkefni er nóg fyrir hendi, hafa svo
marga, að þeir geti skiftst á, og unnið bæði nótt og dag.*) Pað
er algengt, þar sem veturinn er langur, t. d. í Pétursborg, að
verksmiðjurnar láti flesta eða alla verkmenn sína frá sér fara
á sumrin. Fara þeir þá til heimkynna sinna úti í sveit, og fást
við búskap. Græða þeir meira á því, en ef þeir hefðu verið
kyrrir í verksmiðjunum yfir sumartímanu, fyrir sama kaup og þeir
höfðu um veturinn. En þetta fyrirkomulag er ekki síður verk-
smiðjunum en verkmönnum í vil, því héldu þær verkmönnunum alt
árið, yrðu þær að gjalda hærra kaup.
En það eru ekki aðeins þeir, sem vinna í verksmiðjum —
því þær eru nú enn sem komið er teljandi á íslandi —, sem ættu
að hafa annað fyrir stafni á sumrin. Heldur einnig sem flestir
iðnaðarmenti.
Allir sjómenn, sem nú eru iðjulausir á vetrin, ættu að kunna
einhverja handiðn. Pað eru t. d. hvergi nærri því nógu margir
skósmiðir á Islandi, gerðu landsmenn sjálfir þá skó, sem þeir
þurfa (sjá síðar). Skósmíðameistarar, sem nú hafa 2—3 menn í
vinnu alt árið, ættu að hafa 5—8 menn í vinnu á vetrin, en að-
eins einn eða jafnvel engan á sumrin. Pað virðist mjög sann-
gjarnt, að skóviðgerð væri seld helmingi dýrara á sumrin en á
vetrin (þetta á auðvitað við um flestar handiðnir), og mundi það
*) Mér er sagt að í »Tóvélum Eyfirðinga« hafi verið unnið bæði nótt og
dag á vetrin, en að vélarnar hafi ekki verið notaðar einhvern tíma sumarsins. Eigi
er mér kunnugt um, hvort það var vegna þess, að verkefni hafi verið svo geysi-
mikið á vetrin, og verkefnisleysi á sumrin, eða hvort það var til þess, að nota
ódýra vinnukraftinn. Ef til vill hefur það verið af báðum þessum ástæðum. En af
hverju nú sem þetta fyrirkomulag hefur stafað, þá bendir það í áttina, sem halda
skal.