Eimreiðin - 01.09.1910, Side 9
i65
afli; sumir hafa fengið sér tveggja hestafla steinolíu-mótor, sem
þeir láta knýja lykkjusög og önnur tæki, og búa nú sjálfir til
botnana, ódýrar en sögunarverksmiðjurnar geta selt þá.
Höfuðföt, liðlega ioo þúsund króna virði, voru flutt til lands-
ins, og mætti sjálfsagt búa til mikinn hluta þeirra á Islandi, að
minsta kosti alla húfurnar, Eg hef komið inn í herbergi hér í
Höfn, sem var inn af búð, sem seldar voru í húfur (fleiri tegundir
en ég hef séð á íslandi). í herbergi þessu, sem ekki var stærra
en meðalbúr á Islandi, hafði öldruð kona saumað allar hinar marg-
víslegu húfutegundir, og það án annarrar aðstoðar en algengrar
saumavélarl Skygnin keypti hún tilskorin (verksmiðjuvinna).
Að því er flókahattana snertir, þá eru tvær aðferðir við að
búa þá til. Önnur er gömul, og er við hana mikil vinna, en ekki
dýr tæki. Við hina aðferðina, sem er tiltölulega ný, eru vélar
ýmiskonar viðhafðar. Pað er næsta trúlegt, að jafnvel með eldri
aðferðinni geti hattaraiðn þrifist á íslandi. Efni flókahattar er að-
eins lítill hluti af hattverðinu.*)
Stofugögn voru keypt frá útlöndum fyrir liðlega 104 þúsund
krónur. Ekki er efamál, að þau má búa til ódýrari á íslandi, en
útlenzk. Stofugagnasmíð, einkum hin vandaðri, er ein af þeim
handiðnum, sem ennþá þrífst ágætlega, þrátt fyrir allar verksmiðju-
vélar síðustu tíma. Herra Georg Björnsson, stofugagnasmiður hér
í Höfn, segir mér, að verð efnisins í eikarstofugögnum sé ekki
nema nálega ^/ío (tíundi hluti) af verði stofugagnanna fullgerðra, og
efnið í mahónístofugögnum ekki nema nálega 1/is hluti. (Mahóní
er hérumbil helmingi dýrara en eik, en vinnan við að fága það
gerir muninn). Pað er því ekki lítill hluti af þessum 104 þúsund
krónum, sem eru verklaun goldin útlendingum. Stofugagnasmiðir
hér í Höfn vinna sér inn alt að því 40 krónur á viku. En þó að
íslenzkir stofugagnasmiðir, á vetrin, ynnu sér ekki inn nema helm-
*) Flókahattar eru aðallega búnir til úr kanínuhárum, í hina grófgerðari er
höfð ull. Kanínuhár flyzt aðallega frá Frakklandi og Belgíu. í þeim löndum er
árlega slátrað svo tugum miljóna skiftir af kanínum, og eru það einkum fátækir
verkmenn, sem auka tekjur sínar á því, að hafa kanínurækt í hjáverkum. Svartar
loðhúfur, sem til Islands flytjast, hinar svokölluðu oturskinnshúfur, eru flestar úr lituðu
kanínuskinni. Enginn vafi er á því, að kanínurækt gæti aukið að mun tekjur al-
mennings, einkum kaupstaðabúa. Og það er meira en 25 ára gömul reynsla fyrir
því, að kanínur þola íslenzkt loftslag. Sænskur kanínubýlis-eigandi sagði mér, að
þessar þrjár tegundir mundu vel fallnar til ræktunar á Islandi: litla silfurkanín-
an, Himalajakanínan og hérakanínan.