Eimreiðin - 01.09.1910, Qupperneq 10
ing af því, þá mætti árangurinn kallast ágætur (80 kr. um mánuð-
inn). ?á er þess og vert að geta, að flutningsgjald á stofugögn-
um til íslands er sex sinnum dýrara, en flutningsgjaldið á efni-
viðnum.*)
Pjátursmiðir eru mjög fáir á íslandi, en þar eð flutningsgjald
er þrefalt dýrara á pjátursmíði, en á pjátri óunnu, þá er ekki
ólíklegt, að arðsamt væri að búa til í landinu eitthvað af því
ógrynni af könnum og kötlum, sem flyzt frá útlöndum.
Burstagerð ættu og einhverjir að læra, því það er þó nokkuð,
sem brúkað er af fiskiburstum og gólfsópum, en verkið auðlært
(hið grófgerðara) og verkfæri ekki dýr.
Vafalaust geta landsmenn sjálfir búið til meiri hluta varnings
þess, sem Landshagsskýrslurnar nefna einu nafni »tiibúinn fatn-
aður«, og sem árið 1907 nam 687 þúsundum króna. Tölu-
verður hluti af fatnaði þessum er prjónaður ullarnærfatnaður, sjálf-
sagt að einhverju leyti úr íslenzkri ull. Prjónavélarnar eru nú
orðnar svo ódýrar, að landsmönnum ætti engin vorkunn að vera,
að búa til allan þennan prjónaða fatnað sjálfir. Hugsast getur, að
hæfilegt band sé ekki búið til á íslandi. En hér er þá hlutverk
að vinna fyrir tóvélarnar.**) Ennfremur ættum vér að geta saum-
að allan olíufatnað, milliskyrtur og utanhafnarfatnað, og ofið eitt-
hvað af efninu, t. d. milliskyrtudúka og fataefni (hið síðarnefnda í
tóvélum).
Síldarnet 44 þúsund króna virði voru flutt til landsins. Mér
er ekki kunnugt um, að hve miklu leyti vélar við þá vinnu eru
komnar í stað handa. En ótrúlegt þykir mér, að það sé annað
en ólag, að verða að kaupa netin frá útlöndum. Áhöld til þess
að ríða net, kosta sama sem ekkert. Landsmenn gætu að minsta
kosti felt netin sjálfir, því það hlýtur æfinlega að vera handa-
vinna, en ekki véla.
Kaðlar og færi voru flutt til landsins fyrir næstum 300 þús-
und krónur. (Sé seglgarn talið með, þá fyrir 370 þús. kr.). Að
líkindum gætu landsmenn búið til meirihluta þessara kaðla og
færa. Efni kaðlanna er ekki mikill hluti verðs þeirra, og því
*) F.ins og gefur að skilja, þá er það mjög mikilsvarðandi innlendum iðnaði,
að samgöngurnar innanlands komist í sem bezt horf.
**) Albert frá Stóruvöllum hefur búið til spunavélar, en eigi er mér kunnugt
um, hvað þær kosta, né hve miklu þær orka. J>að væri gaman að sjá blaðagrein
um þær#