Eimreiðin - 01.09.1910, Page 21
177
raun um, að það á rót sína að rekja til þess, að þeir hafa til-
tölulega stóra vængi í samanburði við líkamsþyngd þeirra.
Vér getum þannig liðað flughæfileika fugla sundur í tvent:
i. geta þeir svifið án þess að veifa vængjunum, og er
sá hæfileiki mest kominn undir stærð vængjanna í samanburði við
líkamsþungann; 2. geta þeir knúið sig áfram í loftinu, rneð
því að veifa vængjunum; meðal annars er þessi hæfileiki
mjög kominn undir styrkleik og þroskun flugvöðvanna.
Á loftskipunum er fyrri þrautin leyst með loftbelgnum, sem
heldur þeim svífandi, en hin síðari með hreyfivélunum og loftskrúf-
unurn, sem knýja þau áfram.
I stað loftbelgs hafa flugvélarnar nokkurskonar vængi eða
svifþynnur, sem þær líða á um loftið eins og fuglarnir. En til
þess að knýja þær áfram, eru hafðar loftskrúfur, eins og á loft-
skipunum.
Pað tókst ekki í einni svipan að finna nothæfar flugvélar,
menn urðu að feta sig áfram með þolinmæði og þrautseigju.
Menn byrja á því, að svífa af hærri stað á lægri, eins og flug-
íkornarnir, en færa sig svo smátt og smátt upp á skaftið, og
tekst að lokum að knýja þær áfram og stýra þeim á fluginu og
hækka þær og lækka eftir vild.
* *
*
Pýzkur maður, er Lilienthal hét, var sá fyrsti, sem gerði
verulegar tilraunir til þess, að svífa. Pað var á árunum eftir 1890.
Hann bjó sér til svifþynnur úr dúk, er þandar voru út með léttri
grind. Honum tókst vel að svífa af hærri stað á lægri. Af 30
metra háum stað gat hann svifið 300 m. áfram, áður en hann
sveif til jarðar. Hann festi einnig stél eða stýrisþynnur við svif-
vél sína, og gat með þeim stýrt henni talsvert. Honum tókst
einnig að notfæra sér hægan vind, til þess að svífa nokkuð hærra,
en sá staður lá, er hann lagði upp frá. Með langri æfingu tókst
honum að lokum að svífa og halda jafnvægi, þó nokkuð tæki að
hvessa. Hann var einnig farinn að hugsa um að tengja hreyfivél
og loftskrúfu við svifvél sína, til að knýja hana áfram; en það
átti honum ekki að auðnast. Við sviftilraun 10. ágúst 1896 fat-
aðist honum flugið, hann steyptist til jarðar og beið bana.