Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Page 22

Eimreiðin - 01.09.1910, Page 22
i78 Sömu forlögum sættu nokkrir, er gerðu líkar tilraunir næstu árin. Um líkt leyti og Lilienthal gerði tilraunir sínar á Pýzkalandi, fékst verkfræðingur, er Chanute hét eða Knútur á vora tungu, við sviftilraunir í Ameríku. Hann bjó til margar svifvélar, og fann loksins upp svifvél, sem var mjög einföld að gerð, og að ýmsu leyti hentug. Hún er sýnd á 3. mynd. Svifþynnurnar voru 2, hvor upp af annarri, en fyrir aftan þær að neðan eru stýrisþynnur. Sæti loftfarans var nokkru neðar en svifþynnurnar. Til þess að fá svifvélarnar til að svífa, þurfti að velja háan stað til að leggja út frá, og annaðhvort stökkva fram af þverhníptri hæð, eða hlaupa til niður bratta brekku, þangað til loftið spyrnti svo fast undir svif- 3. Svifvél Knúts (Chanute's). þynnurnar, að loftfarinn losnaði við jörðu. Lesandanum verð- ur það vonandi ljóst við að athuga 3. mynd, að úr því vélin er komin á loft, getur hún ekki fallið þráðbeint til jarðar meðan svifþynnurnar iiggja lárétt, því loftið spyrnir á móti þynnunum, og sú mótstaða verður þeim mun meiri, sem þynnurnar eru stærri í samanburði við þyngd loftfarans og vél-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.