Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 25
8i
Bræðurnir fóru eins dult með tilraunir sínar og þeir gátu, en
þó varð eigi hjá því komist, að menn í nágrenni við þá sæju þá
fljúga. En þeir höfðu strangar gætur á, að enginn fengi færi á
að kynna sér gerð vélanna.
Nú áttu þeir eftir að gera sér mat úr uppgötvun sinni. Peir
sneru sér því til stjórnar Bandaríkjanna og buðu henni einkarétt
sinn til kaups. Skyldu
kaupin fullgerast, er
þeir hefðu sýnt, að
þeir gætu látið vél sína
fljúga 50 km. í einu
með 2 farþega. — Lík
skilyrði setti og frakk-
neskt félag, er þeir
sömdu við. 1908 skyldi
próf þetta standa.
Bræðurnir unnu nú af
kappi að vélum sínum
og æfingum, til þess
að vera sem bezt bún-
ir undir þessa opinberu
tilraun. Sumarið 1908
fór Wilbur til Frakk-
lands, til að uppfylla
þau skilyrði, er hið
frakkneska félag setti.
En Orville fór til Vir-
giníu, til að fullnægja
skilyrðum Bandaríkja-
stjórnarinnar. Skömmu
síðar varð Orville fyrir
slysi; hann var á flugælingu með öðrum manni, brotnaði þá önnur
loftskrúfan, vélin steyptist til jarðar, og Orville varð fyrir miklum
meiðslum, en félagi hans beið bana.
Bróður hans Wilbur gekk betur á Frakklandi. Um sama
leyti tókst honum að fljúga í U/2 kl. stund, og nokkru síðar flaug
hann tvívegis meira en 50 km., og hafði þá fullnægt skilyrðum
félagsins, sem borgaði þegar einkaréttinn með hálfri miljón franka.
Á gamlársdag það ár flaug hann í einu 125 km. á 2 kl. stundum
5. Orville Wright (f. 1871).