Eimreiðin - 01.09.1910, Page 29
i»5
fremstur í flokki þeirra var sá, er Latham hét (af enskri ætt).
Hann hóf fyrst flugtilraunir um vorið 1909, en tók skjótum fram-
förum og hafði á skömmum tíma unnið ýms verðlaun fyrir flug.
Loks strengdi hann þess heit, að fljúga yfir Ermarsund milli Eng-
lands og Frakklands fyrir 1. ágúst þá um sumarið. 62,500 frönk-
um var heitið í verðlaun fyrir að leysa þessa þraut.
Árla morguns 19. júlí lagði Latham af stað á flugvél sinni
frá Calais. Eegar hann kom út yfir sundið og var horfinn sjón-
um manna á Frakklandi, misti hann flugið og féll í sjóinti á vél
sinni. En honum vildi það til lífs, að vélin flaut, og þegar skip
það kom að, sem bjargaöi honum, sat hann reykjandi í sæti sínu
á vélinni.
25. júlí skyldi reynt í annað sinn. Én þá kom annar keppi-
nautur til sögunnar; það var Bleríót, sá sem áður er nefndur.
Hann hafði allmikið fengist við flug. Hann var mjög fífldjarfur og
hafði því framan af orðið fyrir miklum hrakföllum og oft hrapáð
til jarðar af flugi. Að síðustu tók honum að lánast betur, og
hafði hann þá unnið sér álit og hlotið verðlaun fyrir flug. La-
tham mistókst einnig tilraun sín 25. júlí, hreyfivélin bilaði og
hann féll aftur í sjóinn. En Bleríót hlaut sigurlaunin, hann flaug
frá Calais yfir til Dover á 45 mínútum, og var tekið þar með
miklum fagnaði og sýnd mikil virðing, og eins á Frakklandi, þeg-
ar hann kom heim aftur. Bví för þessi þótti mesta þrekvirkú
Mælt er, að Latham hafi tárfelt, er hann frétti um fararlok Bleríóts.
22.—29. ágúst 1909 var stofnað til kappflugs í Reims á Fraklc-
landi. Bangað komu yfir 20 frægustu flugmenn heimsins, en bræð-
urnir Wright gátu ekki komið. Þangað söfnuðust og áhorfendur,
svo tugum þúsunda skifti. Farman, sá sem áður er nefndur,
vann þar fyrstu verðlaun; hann flaug samfleytt í rúmar 3 stundir
og komst á þeim tíma 180 km. (24 mílur). Á þessu flugmóti
reyndist flugvél Wrightbræðranna yfirleitt hin bezta; hún var
stöðugust á fluginn, þjálust í snúningum og betur á valdi loft-
farans en nokkur önnur.
* *
*
Stöðugt berast nýjar og nýjar fregnir um framfarir í fluglist-
ínni, og framfaratilraunir; vélar eru smíðaðar með nýju lagi og
eldri vélar umbættar. Flugmönnunum tekst að halda vélunum
lengur í lofti og fljúga lengra í einu en áður, og undravert má