Eimreiðin - 01.09.1910, Side 40
196
öll þessi sex ríki eru suðurríki, og það skýrir málið. í suðurríkj-
unum er mikill fjöldi svertingja, hinir gömlu þrælar og aíkomend-
ur þeirra. Peir eru gallagripir, sem valda óspektum, og eru eink-
um hættulegir hvítu kvenfólki, þegar þeir gerast druknir, og það
er aðallega gegn þeim, að bannlögin eru Stíluð. En það skýrir
þó ekki bannhreyfinguna til fullnustu. Um öll Bandaríkin eru
drykkjustaðir, sem kallaðir eru saloons, og eru einkennilegir fyrir
það land; þeir þykja tæla menu um of til drykkju og eru jafnað-
arlega illræmdir og verðskulda það oftast; og það er gegn þeim,
að sveita- og bæjabönnum er venjulega beint. Pað er varla of-
sagt, að ef hvorki væru svertingjar né saioons, þá fengi bann-
hreyfingin ekki eins mikinn byr og hún hefur haft til þessa.
Bannið hefur sjálfsagt gert allmikið gagn, þar sem því hefur
verið framfylgt, einkum í sveitunum. En galla hefur það jafnan
marga og illa. Fyrst og fremst veldur það lögleysum og laga-
brotum, því að það hefur engan veginn tekist, að hindra alla
áfengissölu; það er alstaðar stór minnihluti, sem þykist ólögum
beittur og hikar sér oft ekki við að fara í kringum lög, sem hon-
um þykja óréttlát, og löghlýðni er nú eiginlega ekki hin sterkasta
hlið Bandaríkjamanna; en einmitt lög, sem þykja óréttlát og óeðli-
leg og ekki er hægt að framfylgja, skapa og halda við líði lítils-
virðingu á lögum í heild sinni. í bannríkinu Kansas er, samkvæmt
skýrslum bandastjórnarinnar, einn áfengissali fyrir hverja 366 íbúa,
en í Massachusetts, þar sem er hár vínsöluskattur, er einn fyrir
hverja S25 íbúa. Áfengið, sem selt er í bannríki, er dýrt, sterkt
og vont; vín- og öldrykkja hverfur nálega með öllu, en sterkra
drykkja er aðallega neytt. Verst er þó, að menn venjast á að
drekka einir og í laumi, og ef þeir fara langt í því, eru þeir taldir
verstir drykkjumenn, því að þeir eru ólæknandi. Bindindisdrykkj-
um (soft drinks) er auðvitað nóg af, en þeir eru einungis sætt
sull, sem er enginn meltingarbætir mönnum; auk þess eru margir
þeirra blandaðir kókaíni og öðrum skaðlegum efnum. Hættuleg-
ast af öllu er þó aðferðin, sem bannlögin gefa hefð í löggjöfinni.
Pau koma þeim anda inn hjá þjóðinni, að alt megi banna með
lögum, ef einungis meirihlutinn vill svo vera láta. Dæmin eru
deginum ljósari. Eingið í Kansas samþykti nýlega lög, er banna
læknum að nota áfengi til lækninga; þannig taka ófróðir og
ómentaðir löggjafar fram fyrir hendurnar á vísindamönnum, og er
auðsén hættan, er af slíku stafar fyrir þjóðfélagið. Nokkur ríki