Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Side 54

Eimreiðin - 01.09.1910, Side 54
210 gróðabrall. Petta er nú andlega fæðan, sem mikill hluti alþýðu lifir á. Hinir lítilsigldari hlaupa eins og sauðir eftir því flokks- blaði, sem þeir eru vanir að lesa, og dáleiðast smátt og smátt af skoðunum þess, unz þeir ekki vilja heyra neitt annað. Sumir standa uppi vankaðir og ráðalausir og vita ekki, hvert þeir eiga að snúa sér. Enda útheimtir það ekki litla þekkingu og dómgreind, að geta fundið, hvað rétt er innanum þann aragrúa af stað- hæfingum, sem flokkarnir berja blákalt fram. Petta alt eru mikil vonbrigði fyrir vini alþýðumentunarinnar; hvernig sem þeir vinna og berjast, ónýtist árangurinn, því óvinurinn sáir jafnóðum illgresi í akurinn. Pað eru engin undur, þó sumir geggist nokkuð eins og nú hagar til. Hinn hvíldarlausi gauragangur stórbæjanna, stöðug lífs- hætta að komast yfir götur, hávaðinn og skarkalinn, hin samvizku- litla samkepni, örðugleikar að ná í atvinnu, taumlausar og tælandi skemtanir, skraut og munaður, hungur og örbirgð, sífeld verkföll, æsingar, kosningabarátta o. m. fl., alt þetta stefnir að því, að gera marga almúgamenn veiklaða eða hálfruglaða. Mikill hluti hinnar mentuðu borgarastéttar lifir líka í sífeldri hringiðu, æsing- um, áhyggjum og geðshræringum. Gróttukvörnin á að mala gull, en malar vanalega að lokum ófrið og sundrungu. Hvergi er hvíld að fá, skemtanirnar eru orðnar leiðinlegar, leikhúsin altaf meira og meira að fyllast af skrípalátum fyrir skrílinn, búin að missa sína fyrri þýðingu. Hvert á að flýja; lífsskoðunin er dimm og drungaleg. Trúin farin og ekkert komið í staðinn nema böl- sýni Schópenhauers, Búddatrú, andatrú eða orðagjálfur efnissinna. Engin huggun að líta til himins, þar er enginn ástríkur faðir; »guð er dauður«, segir Nietzsche. Stjörnurnar líða áfram tilgangs- lausar og tilfinningarlausar, eins og hjólin í verksmiðjuvélunum. Líf mannsins ekkert annað en sleikur dægurflugu yfir vötnum eilífðarinnar«, eins og L. Búchner kemst að orði. Tómleikurl lífslygil Persónurnar í leikritum Ibsens eru margar yfirkomnar af timburmönnum þessarar lífsskoðunar. í*að hefir hvað eftir annað sýnt sig í veraldarsögunni, að miklum byltingum í lífi þjóðanna fylgir vanalega mikil veiklun á taugakerfi einstaklinga, heilar og taugar ofreynast og fara úr lagi. Taugaveiklun þessi kemur fram í mörgu formi og grípur stundum eins og næmur sjúkdómur heilar þjóðir, án þess vart verði við nokkra líkamlega sóttkveikju. Veiklað hugmyndalíf getur haldist

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.