Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Side 63

Eimreiðin - 01.09.1910, Side 63
219 heimsins hérna megin, að þeir vilja sem mest einstaklingsfrelsi og sjálfræði í öllum greinum. þeir eru andvígir öllum herbúnaði og landvörnum og vilja leggja litla rækt við þjóðernishugmyndir, sem þeir álíta úreltar. Öll þessi fyrgreindu atriði hafa haft áhrif á hugmyndir »Evrópumanna« í Kaupmannahöfn og hafa daglega verið prédikuð í blöðum þeirra, þó einstaklingarnir fæstir muni hafa gert sér grein fyrir uppruna hugmynda þeirra, sem þeir að- hyllast. í flokki þessum hafa, auk blaðamanna og rithöfunda, helzt verið efnaðir borgarar í Kaupmannahöfn, sem hafa nóg að bíta og brenna og vilja heita frjálslyndir; hjá alþýðu hafa kenningarnar aldrei fest rætur. Stefna viðburðanna getur oft orðið skrítin og hláieg; nú er þessi »radíkali« flokkur, svo eru »Evrópumenn« nú alment kallaðir, í mörgum atriðum orðinn ættleiðingur »natión- alliberala« flokksins, sem þeir áður skömmuðu og ofsóttu hlííðar- laust, og til þess að ná völdum, hafa þeir orðið að ganga á mála hjá jafnaðarmönnum (sósíalistum), sem í raun réttri eru hinir harð- snúnustu mótstöðumenn aðalhugsjónanna um einstaklingsfrelsið; en báðir flokkar sameinast í hatrinu gegn hervörnum og kristin- dómi. Af þeim kenningum, sem Brandessinnar mest hafa barist fyrir, hafa hinar ýmsu sjálfræðiskenningar, undir frelsisflaggi, haft mest áhrif á æskulýðinn. Grundvöllur alls þroska og framfara hjá mannkyninu hefir frá alda öðli verið sjálfsagi, sjálfsstjórn og sjálfs- afneitun. Dýrið fer eingöngu eftir fýsnum sínum og tilhneigingum; maðurinn hefur sig yfir dýrið með því að halda fýsnum sínum í skeíjum til gagns fyrir sjálfan sig í framtíðinni og til gagns fyrir mannfélagið. Sjálfsagi hefir jafnan þótt örðug list, einkum í æsku, þegar tilhneigingarnar eru ákafastar. Á sumum tímabilum kemur það fyrir, að dýrseðlið verður yfirsterkara, menn sleppa sér og fegra um leið framkomu sína með því, að telja sjálfum sér og Öðrum trú um, að það sé engin skylda að berjast gegn tilhneig- ingum sínum, það sé óþolandi ófrelsi, að leyfa ekki æskulýðnum að njóta lífsins í fullum mæli. Slíkt tímabil rann upp yfir Kaup- mannahöfn á árunum 1880—90 og áttu prédikanir Brandesar og lærisveina hans eigi lítinn þátt í að veikja ábyrgðartilfinninguna og koma losi á ráð ungra manna. Eðlilega er æskulýðurinn í stór- bæjunum, og hefir altaf verið, gjálífur og slarkfenginn; en flestir höfðu þó áður milli túranna meðvitund um, að þeir væru á röng- um vegi; en það var ekki undarlegt, þó léttúðin ykist, þegar

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.