Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Page 71

Eimreiðin - 01.09.1910, Page 71
227 um stráð liprum þýðingum af kvæðum útlendra góðskálda. Yerulega gölluð kvæði eru þar ekki eða alónýtt rusl, en óverðskuldaðar hnútur stundum. Þannig minnist höf. aldrei á prest án þess. að kalla hann »poka« eða »einsýnan poka«, og situr slíkt ekki vel á íslendingi, þar sem það einmitt eru prestarnir, sem verið hafa helztu og beztu stoðir menningar vorrar og bókmenta um margar aldir. Þessu getur enginn neitað, sem ekki hefir ósanngirnisvagl á augum, og er rétt að láta þess getið, þegar i þá er hnýtt. Auðvitað hafa þeir haft sína bresti og margir verið »pokaprestar«, en þeir hafa líka margir verið sönn prýði þjóðfélags vors og menningarfrömuðir. V. G. STEPHAN G. STEPHANSSON: ANDVÖKUR I—II. Rvík I9o9. »Ein af átján« verður manni að hugsa, er menn sjá enn nýja ís- lenzka kvæðabók. Því þeim skýtur nú upp eins og gorkúlum um þessar mundir. En hún er einmitt ekki »ein af átján« þessi bók; hún er al- veg einstök í sinni röð og ólík öllum öðrum. Hún gnæfir eins og hávaxinn »aldinþungur hlynur« upp úr kjarrviðinu og lággróðrinum í skáldaskóginum, sem að vísu getur oft verið dágott augnagaman, en verður svo ofur-smávaxið í samanburði við hina tilkomumiklu laufkrónu. Kvæði St. G. St. eru sjaldnast augnagaman eða sérlega munntöm, þó sum þeirra geti verið það. En þau eru kröftug kjarnfæða, sem reynd- ar er óvíst að allir geti melt. En þeir sem það geta, munu játa, að þar sé ekkert hismi á borð borið. Og þegar menn eru komnir upp á bragðið, þá mun mönnum líka finnast þau hreinasta sælgæti. En »þjóð- skáld« verður hann þó líklega aldrei í þeirn skilningi, að kvæði hans verði á hvers manns vör meðal alþýðunnar. Til þess eru kvæði hans oft og tíðum alt of þunglamaleg og torskilin, og því ekki líkleg til að ná verulegum tökum á fjöldanum, sem ekki vill hafa fyrir að hugsa, og hefir heldur ekki ætíð mikinn tíma til þess. Þau tala líka miklu fremur til heilans en hjartans og eru yfirleitt ekki nógu lipur og leik- andi, til þess að geta hrifið þorra manna með hreimi sínum og hljóm- fegurð, sem hjá mörgurn vegur jafnvel meira en sjálft efnið. Þetta er skáldinu líka sjálfu ljóst, sem sjá má af þessum línum (I, 212): Léðar eru mér til Ijóða-smíða valtar og stopular stundir. Rykfallin harpa, ryðgaðir strengir nú verða leiknir lítt. Undrastu ekki, að mér verða stuttorð ljóð og stirfin. Hljóma þó inst í hugar-djúpi fegri lög og lengri. Á öðrum stað (I, 228) kemst hann svo að orði: En lífsönnin dottandi í dyrnar er sezt, sem daglengis vörður minn er, sem stygði upp léttfleygu ljóðin mín öll, svo liðu þau sönglaust frá mér, sem vængbraut þá hugsun, sem hóf sig á loft og himininn ætlaði sér.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.