Bókasafnið - 01.03.1991, Síða 14
búnaðinn. Ferntree er umboðsaðili DOBIS/LIBIS í
Ástralíu og veitir einnig aðra þjónustu sem byggist á
kerfinu. Þeir halda uppi kerfi um allt landið með IBM-
tölvum sem stendur undir viðskiptum þeirra (þar á meðal
AUSINET beinlínu þjónustu). Þótt ASCIS gagnasöfnin
séu staðsett á tölvu þeirra í Melbourne er þjónustan jafn
aðgengileg öllum, hvar sem er í Ástralíu, í gegnum tölvur
Ferntree í öllum fylkishöfuðborgum landsins. Þannig
hafa allir skólar símatengingu við ASCIS þjónustuna í
sínufylki.
Gagnasafnið
ASCIS notar sérhæfni DOBIS/LIBIS hugbúnaðarins
til þess að geyma færslur sem hafa meira en venjulegan
skráningartexta. Umsagnir eru látnar fylgja færslunum og
einnig gagnrýni, útdrættir og tilvísanir í aðrar skyldar
heimildir sem finna má í grunninum. Hver skóli getur
bætt inn í skrána þeim upplýsingum sem hann kýs eftir að
færslurnar eru komnar í viðkomandi skóla. Hver skóli eða
fræðsluumdæmi getur bætt við upplýsingum um eign,
flokkunartölur aðrar en þær sem notaðar eru í kerfinu,
aðfanganúmer, viðbótar-efnisorð, strikamerki fyrirútlán,
o.s.frv.
ASCIS þjónustan geymir einnig fjölda smásafna (sub-
sets) sem innihalda tilvísanir í heimildir af einhverri sér-
stakri gerð. Grunnurinn að slíkum smásöfnum er þó alltaf
upprunalegi skráningartextinn. Þar að auki getur kerfið
veitt mismunandi upplýsingar um bækur og önnur gögn
eftir því hver tilgangurinn er.
Mikilvægt smásafn er „Upplýsinganet um námsefni“
(ACIN - Australian Curriculum Information Network).
ACIN nær yfir heimildir um menntamál og alls kyns
kennslugögn. Það nær yfir heimildir sem framleiddar eru í
öllum fylkjum og af hinu opinbera, ýmis konar stefnu-
markandi heimildir, námsefni og kennsluáætlanir, hand-
bækur og vinnubækur sem unnar eru af skólum eða
fræðsluumdæmum, próf og efni sem nota má í beinni
kennslu. Sumt af þessu efni hefur verið unnið af einstök-
um kennurum eða skólum, annað hefur verið unnið af
vinnuhópum eða á námskeiðum eða jafnvel af kennara-
samtökum og félögum. ACIN er því gagnasafn sem
geymir upplýsingar um kennslubækur, heimildalista á
einstökum efnissviðum og alls kyns kennsluefni. Gagna-
safnið á að þjóna skólastjórnendum og kennurum og
umsagnirnar og gagnrýnin eiga að aðstoða notendurna
við að finna efni og heimildir sem tengjast skólastarfinu í
hverjum skóla. Með hjálp ACIN hafa skólar um alla
Ástralíu aðgang að opinberum gögnum og skýrslum og
hvers kyns námsefni sem hefur verið unnið annars staðar.
ACIN-tengiliðir í hverju fylki sjá um að gögn frá við-
komandi fylki séu sett inn í gagnasafnið. Sé efnið ein-
göngu áhugavert fyrir eitt fylki má setja það í sérkerfi
viðkomandi fylkis; Nýja Suður Wales hefur t.d. NCIN-
færslur fyrir sína skóla til viðbótar við heildarsafnið og
eins hefur SACIN upplýsingar frá Suður Ástralíu.
Smásafn það sem kallast NSCU (National Software
Co-ordination Unit) veitir upplýsingar og umsagnir um
öll þau tölvuforrit sem nothæf eru í skólum. Fyrir utan
skráningarupplýsingar eru þarna upplýsingar um vélbún-
að, afritunarmöguleika, söluaðila í Ástralíu og notagildi
fyrir skólastarf. Allt að þrjár umsagnir eru um hvert kerfi.
Enn fremur er hægt í beinu sambandi við ASCIS að fá
tengingu við skráningartextana og þar er hægt að vísa
mönnum á handbækur, leiðbeiningar, myndbönd og
kennsluefni sem tengist tölvuforritunum.
Tvö önnur smásöfn hafa verið þróuð til að uppfylla
sérstaka þörf í áströlskum skólum. Þetta er annars vegar
safn sem inniheldur efni um Ástralíu (Australian Studies)
þar með talið efni um ástralska sögu, landafræði, stjórn-
mál og menningu. Hins vegar er smágrunnur sem tekur til
efnis um frumbyggja Ástralíu og Torres Strait (Aboriginal
and Torres Strait Islander Resources — ATSIR). Er hér
efni sem notast bæði þar sem þessir hópar eru fjölmennir
og einnig þar sem kennt er um þessa menningarhópa. Efni
á máli þessara hópa er einnig í grunninum.
Enn má nefna sérstakt gagnasafn sem er hluti af ASCIS
þjónustunni en það er Lu Rees skjalasafnið. Þetta safn
nýtir þá möguleika DOBIS/LIBIS kerfisins að hafa mik-
inn texta með færslunum. Lu Rees safnið í Canberra
safnar efni sem tengist áströlskum barnabókum og barna-
bókahöfundum. Þetta safn var byggt upp af Barnabóka-
ráði Ástralíu (Children’s Book Council of Australia) og er
til húsa í Háskólanum í Canberra. Þarna eru upplýsingar
um 170 barnabókahöfunda — æviágrip, eintök af bókum
þeirra, umsagnir, handrit, Ijósmyndir, bréf, handrit að
útvarpsþáttum og alls kyns persónulegir munir. Háskól-
inn í Canberra gerir efni safnsins aðgengilegt og sendir
afrit af því urn allt land gegn greiðslu.
Skólasafnverðir meta það mikils að hafa aðgang að
þessu safni þegar verið er að undirbúa sýningar eða kynn-
ingar á höfundum, þegar til stendur að fá þá í heimsókn
eða þegar bókmenntakynningar eru undirbúnar. En til
þess að geta nýtt sér þetta safn þurfa skólasafnverðir að
vita hvað er til. Þess vegna er Lu Rees smásafnið þannig
búið að þar eru upplýsingar um hvern höfund með ævi-
ágripum, lista yfir það efni sem til er um höfundinn í
safninu, lista yfir bækur sem viðkomandi hefur skrifað,
þýðingar sem vitað er um og allar viðurkenningar sem
hann hefur hlotið. Heimilisfang og símanúmer safnsins er
gefið upp svo hægt sé að biðja um efni. Þannig getur
skólasafnvörður, sem leitar í beinu sambandi í ASCIS
kerfinu eftir efni um sérstakan ástralskan höfund, haft
aðgang að því sem skrifað hefur verið um hann, getur
fundið allt kennsluefni sem hefur verið gert til að kynna
þennan aðila í gegnum ACIN-gagnasafnið og getur síðan
fundið ævisögulegar upplýsingar, handrit og allt annað
efni sem til er um hann í Lu Rees safninu.
ASCIS þjónusta
ASCIS býður upp á margs konar þjónustu við skólana
sem byggist á gagnasafninu og þeim möguleikum sem
DOBIS/LIBIS hugbúnaðurinn býður upp á. Skólar geta
pantað skráningarspjöld eða þeir geta látið ASCIS sjá um
að halda við skránum sínum, ýmist með örfilmuskrám eða
með því að fá tölvuprentaðar skrár. Hægt er að panta
skráninguna á disklingi og einnig geta fylkin pantað
skráningu á tölvuböndum. Tölvupóstur sem kerfið býður
upp á gerir skólunum kleift að panta færslur beint og
einnig að hafa samband við ASCIS miðstöðina eða hafa
samband hver við annan. Tölvuskilaboð (electronic bul-
letin board) er þjónusta sem enn er á byrjunarstigi en gerir
ASCIS notendum það mögulegt að senda skilaboð til
annarra notenda og koma upplýsingum á framfæri eða
jafnvel að biðja um upplýsingar. ASCIS endurskráningar-
14
BÓKASAFNIÐ