Bókasafnið - 01.03.1991, Síða 19
því miður reyndist ekki um samvinnugrundvöll að ræða
meðal stærstu bókasafna landsins.
Því miður hefur íslenskum bókavörðum ekki tekist að
vinna saman að tölvuvæðingu safna sinna. Bókasöfn hér á
landi eru nú í óða önn að tölvuvæða starfsemi sína og
keypt hafa verið mörg mismunandi kerfi. Háskólabóka-
safn og Landsbókasafn hafa valið tölvukerfið Libertas og
Borgarbókasafn og Læknisfræðibókasafn Landspítala
hafa valið DOBIS/LIBIS. Einnig hafa nokkur söfn valið
norska kerfið MIKROMARC og íslensku kerfin Bókver
og Metrabók. Af þessu má sjá að tölvuvædd samskrá fyrir
allt landið er ekki í augsýn í bráð.
Hvað kemur í veg fyrir samvinnu?
Helsti hvatinn að samvinnu er að gera sér grein fyrir
þörfinni á samvinnu og hvað vinnst með henni. En það
þarf fleira til; fólk þarf að vera sannfært um að mögulegar
lausnir finnist og það þarf vilja til að aðlagast. Þó svo að
þörfin fyrir samvinnu sé augljós og lausnir í augsýn eru
hindranir þó enn til staðar, og þær geta verið með ýmsu
móti. Árið 1968 stóðu Bandarísku bókasafnasamtökin
(American Library Association) fyrir röð funda víða um
Bandaríkin þar sem bókaverðir ræddu þau atriði sem
kæmu í veg fyrir samvinnu. Þáttakendur á þessum fund-
um nefndu alls 46 atriði sem gætu komið í veg fyrir eða
haft neikvæð áhrif á samvinnu bókasafna og var þessum
atriðum skipt í 5 meginflokka (Resource: 1974). Niður-
staðan fer hér á eftir í lauslegri þýðingu greinarhöfundar:
1. PERSÓNULEGAR HINDRANIR
Ótti við að missa sjálfstæði
Þrjóska
Afbrýði
Persónulegar deilur milli bókavarða
Tortryggni
Tregða og afskiptaleysi
Ótti við tilraunastarfsemi
Sú trú að hvert einstakt bókasafn hafi sérstakar þarfir
fremur en að þarfir bókasafna geti verið sameiginlegar
2. SKORTUR Á UPPLÝSINGUM
Skortur á upplýsingum um þarfir notenda
Skortur á upplýsingum um hlutverk mismunandi
safnategunda
Áhugaleysi almennings og yfirvalda á bókasafnsþjón-
ustu
Lítil bókasöfn gera sér ekki grein fyrir gildi safnkosts
stærri bókasafnanna
3. „HEFÐBUNDNAR" HINDRANIR
Skortur á fjármagni
Ótti stærri bókasafna á „ofnotkun“
Takmarkaður aðgangur að rannsókna- og sérfræði-
bókasöfnum
Samkeppni milli almenningsbókasafna og skólasafna
4. LANDFRÆÐILEGAR HINDRANIR
Fjarlægðir milli bókasafna
Fjarlægðir milli notenda og bókasafna
Mismunandi stærðir bókasafna hvað varðar safnkost
Erfiðleikar við að þjóna dreifbýlinu
Tafir við að uppfylla óskir notenda bókasafnanna
5. LAGALEGAR OG STJÓRNUNARLEGAR
HINDRANIR
Skortur á „leiðtogum" í bókasöfnum
Svifaseint opinbert kerfi, sérstaklega varðandi fjár-
magn
Skortur á löggjöf
Skortur á upplýsingamiðlun til yfirvalda
Skortur á bókfræðiritum og bókfræðilegri stjórn
Mismunandi tækjakostur og starfsreglur hjá bókasöfn-
um
Skortur á vel þjálfuðu starfsfólki
Þó svo að þessar hindranir hafi verið til umræðu hjá
bandarískum bókavörðum fyrir rúmlega tuttugu árum,
og sumar þeirra miðist við bandarískt þjóðfélag, þá er vert
að hugleiða þær. Eflaust getum við heimfært einhverjar
þeirra upp á okkur sjálf og íslenskar aðstæður. Svo virðist
sem meginvandamálin við samvinnu séu mannlegs eðlis
en ekki vegna tæknivandamála. Þó megum við ekki ein-
blína á brigðugleika mannskepnunnar, hér geta einnig
komið við sögu vandamál lagalegs eðlis eða vegna höf-
undaréttar. Hvað sem öðru líður ætturn við að hafa í huga
orð H. Redwood (Kristallar: 1982) sem sagði: „Vertu
samstiga samferðamönnunum, og þá verður leiðin létt-
ari“.
HEIMILDIR:
Dowd, Sheila T. 1990. Library cooperation : methods, models to aid
information access. Journal of Library Administration 12(3):63-
81.
Kristallar 1982. Reykjavík : Almenna bókafélagið.
Lög um almenningsbókasöfn nr. 50/1976.
Lög um Landsbókasafn Islands nr. 38/1969.
Mechanisms for library cooperation 1988. Ed. Verina Horsnell. Al-
dershot : Gower.
Reglugerð um almenningsbókasöfn nr. 138/1978.
Resource sharing in libraries 1974. Ed. Allen Kent. New York :
Marcel Dekker.
Rogerson, Ian 1988. Cooperation, myth or reality. Catalogue &
Index (90—91):1, 3-4.
Sigrún Klara Hannesdóttir ... o.fl. 1990. Stefnumörkun í bókasafna-
og upplýsingamálum : bráðabirgðaskýrsla. Reykjavík. Fjölrit.
Skipulagsskrá fyrir Þjónustumiðstöð bókasafna 1978.
Upplýsingar eru auðlind 1990. Reykjavík : Samstarfsnefnd um upp-
lýsingamál.
SUMMARY
„United we stand“ — about library cooperation
While the ever growing mass of information has necessitated in-
creasing cooperation worldwide on every level of library activity
there is a considerable shortage of cooperation among Icelandic
libraries. Nevertheless, despite a lack of proper legal provision for a
unified policy, certain libraries like e.g. members of the medical
library group have successfully initiated cooperative schemes among
themselves. While such attempts are promising cooperation should
be considered in a broader context and the article proposes to exam-
ine the Icelandic situation with regard to the five most urgent issues.
Accordingly, the themes of library service centres, cooperative stor-
age facilities, collection development, interlibrary loan and union
catalogues are analyzed in a detailed fashion. Of these five areas the
problem of a union catalogue is apparently the most pressing with no
immediate solution in sight. Finally, based on a reference from the
literature, the major obstacles to library cooperation in general are
also discussed.
BÓKASAFNIÐ
19