Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1991, Side 21

Bókasafnið - 01.03.1991, Side 21
Frá Bókasafni Landspítalans. leitir í tölvu árið 1981 en slíkar leitir fyrir læknisfræði- bókasöfnin höfðu áður farið fram í gegnum erlenda aðila. Fyrstu árin eftir að tölvuleitir hófust á Landspítalasafninu sá bókasafnið um leitir fyrir hin læknisfræðisöfnin eða þar til þau hófu að gera eigin leitir. I ársbyrjun 1989 keypti Læknisfræðibókasafn Landa- kotsspítala áskrift að MeDLINE á geisladiskum frá Ebsco Subscription Services. Bókasöfn Borgarspítala, Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri og Landspítala fylgdu í kjölfarið vorið 1990 og keyptu MeDLINE geisladiska frá Silverplatter. Samkomulag var um þetta og kom það til af hagkvæmni í innkaupum. Rita- og tímaritaskrár Matthildur Marteinsdóttir, yfirmaður safnsins á Borg- arspítalanum, hefur haldið skrá yfir efni Læknablaðsins (frá 1946-) í spjaldskrárformi og hafa hin söfnin notið góðs af þar sem þau hafa getað hringt og fengið upplýsing- ar um höfunda og efni. Til er skrá yfir Læknablaðið frá upphafi til ársins 1946 sem Sigurjón Jónsson, læknir, tók saman. Skrá Matthildar hefur nú öll verið sameinuð Rit- skrá lækna sem kemur út á næstunni. Ritskráin var unnin að tilstuðlan Læknafélags íslands og er skrá yfir ritverk núlifandi lækna sem sent hafa ritskrár sínar til Læknafé- lagsins. Ennfremur inniheldur hún ýmis tímarit um heil- brigðismál. Ritstjóri Ritskrárinnar er Sólveig Þorsteins- dóttir en aðrir sem unnu að skránni eru, auk Sólveigar og Matthildar, Ásdís Hafstað og Halldóra Haraldsdóttir. Skrá yfir efni Tímarits Hjúkrunarfélags Islands 1925- 1979, sem Hervör Hólmjárn tók saman, var gefin út af Hjúkrunarfélagi Islands 1981 og framhald skráarinnar þ.e. 1980- er til í spjaldskrárformi á Landakoti. Skrá yfir efni Læknanemans 19401974, sem Erla Kristín Jónasdóttir tók saman, kom út 1977 og er framhald hennar unnið á Lækn- isfræðibókasafni Borgarspítalans. Skrá yfir efni Heil- brigðismála er til í ljósriti frá upphafi og á spjöldum, höfundur er Sigríður Sigtryggsdóttir. Söfnin hafa flest öll gefið út tímaritalista árlega og hafa sumir þessara lista verið tvískiptir, þ.e. titlaskrá og efnis- flokkuð skrá. Hervör Hólmjárn, annar yfirmaður Landa- kotssafns, hefur gefið út samskrá yfir hjúkrunartímaritin í landinu og hefur skráin nýst söfnunum vel. Listar þessir hafa verið gefnir út, þrátt fyrir Samskrá um erlend tímarit, þar sem hún hefur ekki komið nægilega oft út til að gagnast söfnunum til fulls. Erlend samvinna Söfnin hafa góða samvinnu við söfn á Norðurlöndun- um, bæði hvað varðar millisafnalán, upplýsingaleitir í tölvu og skrif í samnorrænt blað, MIC Nytt sem gefið er út í Svíðþjóð. Bókaverðir hafa sótt fundi fyrir læknis- fræðibókaverði á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum. Tímaritaforði íslenskra safna er skráður í List BIO-MED, sem er í bókaformi, og NORDSER sem er tölvuvædd BÓKASAFNIÐ 21

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.