Bókasafnið - 01.06.1996, Qupperneq 37
Almenningsbókasöfn tryggi almenningi aðgang að töivubúnaði og
upplýsingum á tölvutæku formi.að Menningarnetinu og öðrum upp-
lýsingum á Internetinu, auk margmiðlunarefnis.
Nefnd um tengingu íslenskra bókasafna í stafrænt upp-
lýsinganet starfaði einnig á vegum ráðuneytisins á síðasta
ári og skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 1996 þar sem
gerðar voru tillögur um hlutverk almenningsbókasafna í
nútímaþjóðfélagi. I ritinu I krafti upplýsinga er tekið undir
markmið nefndarinnar um hlutverk bókasafna. Þessi nefnd
gerði einnig tillögur að nýjum lögum um almenningsbóka-
söfn. Almenningsbókaverðir eru mjög bjartsýnir á að ný
lög verði sett á árinu 1996.
Lokaorð
Eins og fram kom fýrr í þessari grein hafa útlán aukist
um 75% á síðustu fjórum árum á Bókasafni Reykjanesbæj-
ar og lánþegum fjölgað um rúm 130% á. Megnið af útlán-
unum eru bókmenntir til afþreyingarlesturs. Stundum hef-
ur maður óneitanlega áhyggjur af einhliða bókavali lán-
þega, en margir lesa sig frá þessum bókum og bók-
menntasmekkur breytist með árunum.
A sama tíma og fólk um allan heim hefur áhyggjur af
ólæsi kætast íslenskir almenningsbókaverðir yfir hækkandi
útlánatölum. Þeir hljóta að leggja sig fram við að bjóða upp
á það sem fólk vill lesa í þeirri von, að heimur bókarinnar
lifi áfram og komandi kynslóðir eigi einnig eftir að eiga
góðar stundir með bók í hönd.
Höfundur er bókasafnsfrœðingur og bœjarbókavörður í Bóka-
safni Reykjanesbœjar.
SUMMARY
Book Selection and Purchasing Policy in a Public Library
Book selection and book purchasing policy in Reykjanes Municipal
Library (Bókasafn Reykjanesbæjar) is discussed. The library serves a
community with 10.500 inhabitants and serves also as a central library for
further 1.836 inhabitants. Refers to the Public Library Legislation, No.
50/1976, where a.o. the role of public libraries is laid down. Cites also the
Regulation for Public Libraries, No 138/1978, where a.o. the role of cen-
tral libraries is stated. Lists the minimum pecuniary contribution provid-
ed by local authorities, which is index-linked and laid down on per capi-
ta basis in the library legislation and which is revised every year by the
Statistical Bureau of Iceland (Hagstofa íslands). Informs that the budget
for Reykjanes Municipal Library is almost 100% higher than administer-
ed in the legislation, and 12,7% of the budget go trhough purchasing of
books and periodicals. The library moved recently to new housing, where
the operating cost is much higher than before. The last four years there
has been an increase of 75% in the library’s circulation and 130% incre-
ase in the amount of borrowers, but no increase in the budget, which calls
for more resolute purchasing policy and more exact defmition of the role
of the library. States that this tendency applies for most bigger public libr-
aries in Iceland. Describes the purchasing policy in the Reykjanes Mun-
icipal Library. Traces the main development in the library world in
Iceland for the last two decades, e.g. the foundation of school libraries in
most schools and special libraries in many institutions. Discusses the need
for a defmition as to whom the public libraries should serve. Deals with
new technologies in public libraries, like multimedia and the information
highway and their impact on the library services. Concludes by stating
that public librarians in Iceland now generally enjoy increasing lending
figures and by stressing that nevertheless a new Public Library Legislation
is due long ago.
HEIMILDIR:
í krafti upplýsinga : tillögur menntamálaráðuneytisins um menntun, menn-
ingu og upplýsingatœkni 1996-1999. 1996. Reykjavík : Menntamála-
ráðuneytið.
Lancaster, F. W. 1993. If you want to evaluate your library. 2nd ed.
Champaign, IL : University of Illinois.
Lágmarksframlög sveitarfélaga til almenningsbókasafna skv. lögum nr.
50/1978. 1995. Reykjavík : Hagstofa íslands.
Lög um almenningsbókasöfn nr. 50/1976.
Reglugerð um almenningsbókasöfn nr. 138/1978.
Skýrsla og tillögur um tengingu íslenskra bókasafna í stafrœnt upplýsinganet.
1996. Reykjavík : Menntamálaráðuneytið.
Stefhumörkun í bókasafna- ogupplýsingamálum tilaldamóta. 1991. Reykja-
vík : Menntamálaráðuneytið.
Vinnureglur þessar byggja óneitan-
lega á kenningum Ranganathans frá
1931 um þjónustu bókasafna (Five
Laws of Library Service) sem enn eru í
fullu gildi. Þær eru eftirtaldar:
1. Bækur eru til að nota þær.
2. Bók fyrir sérhvern lesanda.
3. Lesanda fyrir sérhverja bók.
4. Spara tíma lesandans.
5. Bókasöfn eru lifandi stofnanir.
Ný lög um almenningsbókasöfn
Eins og sjá má af því sem þegar hef-
ur komið fram hér að framan er löngu
tímabært að endurskoða lög um al-
menningsbókasöfn og móta framtíð-
arstefnu bókasafna í upplýsingasamfé-
lagi þar sem hraði og tækni ráða ríkj-
um. Síðast var gerð tilraun til þessa
árið 1990. Þá var búið að vinna frum-
varp til laga sem leggja átti íyrir Al-
þingi 1990-91 en það var aldrei lagt
fram. Á sama tíma var lögð vinna í
mótun stefnu í málefnum bókasafna af nefnd á vegum
menntamálaráðuneytisins. Tillögur nefndarinnar Stefnu-
mörkun í bókasafna- og upplýsingamálum til aldamóta
döguðu uppi í ráðuneytinu.
í byrjun þessa árs sendi menntamálaráðuneytið frá sér
I krafti upplýsinga: tillögur menntamálaráðuneytisins um
menntun, menningu og upplýsingatakni 1996-1999. Þar er
gert ráð íyrir því að almenningsbókasöfn gegni mikilvægu
hlutverki í upplýsingasamfélagi og hafi eftirfarandi að
markmiði:
Bókasafiiið 20. árg. 1996 37