Bókasafnið - 01.06.1996, Síða 27
Ruth Rendell: bresk f.
1930
Rendell hefur skrifað
bæði undir eigin nafni og
dulnefni, þ.e. Barbara
Vine. Ruth hefur sent frá
sér fjölda bóka undir
báðum þessum nöfnum,
en einkum hafa sögur
Barböru verið sálfræði —
tryllar. Sögur Ruth Rendell hafa margar verið kvikmyndað-
ar og sýndar í sjónvarpi, t.d. sögurnar um Wexford lög-
regluforingja. Nokkrar bækur hennar hafa verið þýddar á
íslensku. A síðustu árum hefur hún talsvert breytt um stíl
og yrkisefni. Sem Barbara Vine sendi hún frá sér Asta’s story
fyrir tveimur árum, en hún fjallar um danska konu, inn-
flytjanda í London í byrjun aldarinnar. Þjóðfélagsgagnrýni
gætir talsvert í tveimur síðustu bókum hennar undir eigin
nafni, The crocodile bird og Simisola, auk sálfræðilegs inn-
sæis. Að okkar mati eru þessar tvær síðustu með því allra
besta sem hún hefur skrifað.
fylgist með störfum
hennar og reynir að rétta
hjálparhönd ef með þarf.
Tvær af sögunum um
Kinsey hafa verið gefnar
út á íslensku.
Anne Perry: (duln. f. Juliet Hulme) f. 1938
Anne Perry gaf fyrstu bók sína út árið 1978 og er þekkt
fyrir sakamálasögur sínar sem gerast í London á Viktoríu-
tímanum. í sögunum kemur vel fram þjóðfélagsleg staða
fólks á þessum tíma, ekki síst stéttaskiptingin og staða
kvenna.
Anne Perry er dulnefni Juliet Hulme en hún er önnur
aðalpersónan í kvikmyndinni Heavenly creatures þar sem
lýst er sögu tveggja vinkvenna sem á unglingsárum myrtu
móður annarrar.
Patricia D. Cornwell: bandarísk f. 1956
Fyrsta bók Patriciu D. Cornwell var Postmortem (Krufn-
ing) þar sem aðalsögupersónan er réttarlæknirinn Kay
Scarpetta. Henni er síðan fylgt eftir í næstu bókum, sem nú
eru orðnar fimm. Jafnframt því að segja sögu glæpamálsins
þar sem sönnunargögnin koma smám saman í ljós er mik-
il umfjöllun um einkalíf Kay og samskipti hennar við vini
og starfsfélaga. Höfundurinn kynnir sér greinilega mjög vel
það sem hann er að skrifa um hverju sinni og lýsir því af
nákvæmni.
Kirsten Holst: dönsk f. 1940
Hún hefur skrifað fjölda bóka, spennusögur, barna- og
unglingabækur o.fl. Hún lætur yfirleitt lögregluna upplýsa
málin og lýsir störfum hennar af skilningi og raunsæi, enda
voru faðir hennar og afi báðir lögreglumenn (en maðurinn
hennar er smiður). Kirsten er úrvalshöfundur og nýjasta
bók hennar / al sin glans og herlighed er alveg sérstök. Hún
er komin út á íslensku og heitir í allri sinni dýrð, en auk
hennar hafa komið út á íslensku bókin Barnið á að sofha og
Spennandi sjóferð.
Kim Smág e: norsk f. um 1960
Hún er útlærður kafari og fyrstu spennusögur hennar
fjalla um köfun. Sögurnar hafa þróast frá „ofurspennu“ í
fyrstu bókunum til spennusagna með þjóðfélagslegu raun-
sæi. Kim hafði vetursetu á Blönduósi fyrir fáum árum til að
skrifa bók í friði. Hún er góður höfundur og alltaf að
batna. Ein bók kom nýlega út á íslensku, Sub rosa.
Amanda Cross: (duln. f. Carolyn Heilbrun) bandarísk á
rúmlega besta aldri, þ.e. um sjötugt.
Spæjarinn hennar, Kate Fanssler, er prófessor í enskum
bókmenntum og sögurnar gerast í bókmenntalegu um-
hverfi og hafa bókmenntalega skírskotun. Kate er um
fimmtugt, vel gift, hefur góða kímnigáfu og drekkur malt-
viský. Amanda Cross hefur skrifað u.þ.b. tíu „krimma“.
Elisabeth Peters: (duln. f. Barbara Gross) bandarísk f.
1927
Peters hefur skrifað mikinn fjölda bóka, ástarsögur og
„krimma“ og hvort tveggja í bland undir ýmsum nöfnum.
Bestar af bókum hennar þykja okkur þær sem fjalla um
Amaliu Peabody, enska kvenréttindakonu og landkönnuð
um aldamótin síðustu. Sögurnar eru oft óborganlega
fyndnar og líka ágætlega spennandi.
Dorothy Gilman: bandarísk f. 1923
Gilman hefur skrifað fleiri bækur en tölu verður á kom-
ið. Söguhetja hennar í einum bókaflokkanna er Mrs. Polly-
fax. í fyrstu bókinni kynnumst við Mrs. Pollyfax þegar hún
er orðin ekkja, rúmlega sextug og í þokkalegum efnum.
Hún er orðin hundleið á bridsklúbbnum, orkideuklúbbn-
um og öllum hinum klúbbunum svo hún sest niður og spyr
sjálfa sig hvað hana langi til að gera. Jú, hana langar til að
verða njósnari. Svo hún fer til aðalstöðva CLA og spyr eftir
forstjóranum ... Ágætlega spennandi og fyndnar. Mrs.
Pollyfax er yndisleg söguhetja.
Svo eru þær ýmsar góðar gömlu, ensku kerlurnar í
bransanum. Auk Agöthu sálugu eru t.d. Margery Alling-
ham og Patricia Wentworth ósköp ljúfar og þægilegar ef
þannig liggur á manni. Og þær eru líka alveg nægilega
spennandi fyrir þroskaða lesendur.
Höfundar eru bókasafnsfrtzðingar. Helga Einarsdóttir er for-
stöðumaður bókasafns Kvennaskólans í Reykjavík og Ingibjörg
Rögnvaldsdóttir starfar í útibúi Borgarbókasafnsins í Gerðu-
bergi.
SUMMARY
A Reading Club on Criminal Literature
Report on a reading club founded in the fall 1994 by nine women
interested in reading criminal literature. The club mainly deals with books
by women. During the winter the members meet regularly once a month.
The favourites and reading habits of the club are described. Most of the
books are in English or from the other Nordic Countries. An annotated
list of 21 authors of criminal stories accompanies the report, where short
description of the main characters, mainly the detectives, is given.
Bókasafnið 20. árg. 1996 27